Fulltrúar nýsköpunarumhverfisins á Norðurlandi eystra sóttu nýverið nýsköpunarráðstefnuna Tonik í Færeyjum, eina helstu nýsköpunar- og frumkvöðlahátíð Norðurlanda.
Viðburðurinn Fiðringur fer fram 6. maí kl. 20:00 í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Fiðringur er skapandi viðburður þar sem nemendur í 8.–10. bekk grunnskóla fá tækifæri til að tjá sig í gegnum ýmiss konar list- og sviðsframkomu.
Aprílmánuður var viðburðaríkur í starfi SSNE og endurspeglaði vel þá breidd sem einkennir starfsemi samtakanna – allt frá ungmennalýðræði og nýsköpun til stefnumótunar og þekkingaruppbyggingar í sveitarfélögum á Norðurlandi eystra.
Fasteignamarkaðurinn á Norðurlandi eystra var áfram vel virkur árið 2025, þó sölutölur bendi til samdráttar á Siglufirði, Húsavík og í Ólafsfirði – og að einhverju leyti í Dalvíkurbyggð. Á sama tíma heldur Akureyri áfram að auka umsvif sín og er fasteignaverð hæst í póstnúmeri 600.
Nú er yfirstaðin Nýsköpunarvikan eða Iceland Innovation Week sem haldin er árlega í Reykjavík. Um er að ræða stærstu nýsköpunarveislu landsins sem haldin er víðsvegar um borgina. Fjölbreyttir viðburðir sem tóku á öllu nýsköpunarferðlaginu frá hugmynd til fjármögnunar voru vel sóttir.
Ríkisstjórnin hyggst ráðast í sérstakt átaksverkefni árið 2026 til að efla hleðsluinnviði rafbíla um land allt. Aðgerðirnar eru kynntar í ljósi hækkandi heimsmarkaðsverðs olíu og óstöðugleika á eldsneytismörkuðum, með það að markmiði að flýta orkuskiptum í samgöngum og draga úr berskjöldun heimila og fyrirtækja gagnvart verðsveiflum.
SSNE hefur gefið út nýja skýrslu sem ber heitið Stoðir atvinnu & mannlífs í Langanesbyggð. Í skýrslunni er reynt að gefa nokkra mynd atvinnulífi, innviðum og byggðaþróun á svæðinu og draga fram þau tækifæri sem eru til staðar til að styrkja byggðafestu og skapa sjálfbæra framtíð.