Fara í efni

Menning

Á Norðurlandi eystra er fjölbreytt og kraftmikið menningarlíf. Hér starfa listafólk, félagasamtök, menningarstofnanir og öflug grasrót sem stendur að fjölbreyttum viðburðum og verkefnum um allt svæðið.
 
Menning og skapandi greinar gegna mikilvægu hlutverki í þróun samfélaga. Þær auðga mannlíf, styrkja staðaranda og samfélagslega samstöðu og gera Norðurland eystra að eftirsóknarverðum stað til að búa, starfa og heimsækja.
Eitt af markmiðum Sóknaráætlunar Norðurlands eystra er að í landshlutanum sé öflugt menningarlíf og stutt sé við fjölbreytta menningar- og listviðburði.
 
SSNE vinnur að því að efla menningarstarf og skapandi greinar á Norðurlandi eystra, meðal annars með stuðningi við verkefni, ráðgjöf, samstarfi og miðlun tækifæra.

 

 

Verkefni SSNE í menningu:

Uppbyggingarsjóður

Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra er eitt af mikilvægustu verkfærum Sóknaráætlunar Norðurlands eystra til að styðja við frumkvæði og þróun á svæðinu. Sjóðurinn styður meðal annars menningarverkefni, menningarviðburði og starfsemi á sviði lista og menningar.

Styrkir úr sjóðnum hafa gert fjölbreyttum verkefnum kleift að verða að veruleika og stuðlað að öflugu menningarstarfi víða um Norðurland eystra. Allar upplýsingar um sjóðinn má finna hér.

Menningarbyggðin

 Menningarbyggðin er áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands eystra sem miðar að því að efla menningarstarf og auka sýnileika menningarviðburða á svæðinu. Markmiðið er meðal annars að auka stuðning við menningarviðburði og skapa skýrari umgjörð um menningarverkefni. 

Verkefnið byggir einnig á því að draga betur fram þá fjölbreyttu menningu sem þegar er til staðar og styrkja Norðurland eystra sem lifandi menningarsvæði og aðlaðandi búsetukost.

Sýnileiki viðburða

Á Norðurlandi er fjölbreytt úrval viðburða árið um kring og mikilvægt er að upplýsingar um þá séu aðgengilegar á einum stað. Markaðsstofa Norðurlands heldur úti viðburðadagatali á vefnum Upplifðu Norðurland þar sem finna má upplýsingar um viðburði víðs vegar um landshlutann.

Viðburðahaldarar geta sjálfir skráð viðburði sína í dagatalið og þannig aukið sýnileika þeirra gagnvart bæði íbúum og gestum á Norðurlandi.

SSNE hvetur því félagasamtök, menningarstofnanir, fyrirtæki, sveitarfélög og aðra viðburðahaldara til að nýta dagatalið og skrá þar viðburði sem fram fara á svæðinu.

Öflug upplýsingamiðlun um það sem er að gerast í landshlutanum styður jafnframt við markmið áhersluverkefnis SSNE um menningarbyggð á Norðurlandi eystra, þar sem áhersla er lögð á að efla menningarlíf og sýnileika menningarstarfs á svæðinu.

Skoða viðburðadagatalið og skrá viðburð

Vantar þig ráðgjöf?
Ertu með hugmynd að menningarverkefni, að skipuleggja viðburð eða viltu vita hvaða styrkir og tækifæri standa til boða? Hafðu samband við tengiliði menningar eða sendu tölvupóst á ssne@ssne.is.

Tengdar fréttir