Fara í efni

Atvinnuþróun og ráðgjöf

SSNE sinnir ráðgjöf á sviði atvinnuþróunar, nýsköpunar og menningarmála til einstaklinga, fyrirtækja og sveitarfélaga á Norðurlandi eystra.

Atvinnuráðgjafar veita m.a.

  • ráðgjöf við rekstraráætlanagerð
  • upplýsingar um mögulega styrki í boði
  • aðstoð við stofnun á fyrirtæki
  • ráðgjöf við markaðssetningu

 

SSNE atvinnuþróun aðstoðar fyrirtæki og aðila sem hyggja á atvinnurekstur við að greina þörf sína fyrir frekari sérfræðiaðstoð og veita upplýsingar um hvar slíka aðstoð er að fá, jafnt innanlands sem utan. SSNE atvinnuþróun stendur einnig fyrir fræðslustarfsemi og stuðlar að aukinni samvinnu fyrirtækja.

Atvinnuráðgjafar SSNE atvinnuþróunar eru staðsettir víða á Norðurlandi eystra.
Hafðu samband við atvinnuráðgjafa og bókaðu viðtal, það kostar ekkert.

Bóka tíma hjá atvinnuráðgjafa