Ársþing SSNE 2026
Ársþing Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra 2026
Ársþing SSNE verður haldið fimmtudaginn 26. mars næstkomandi.
Stjórn SSNE boðar hér með til ársþings 2026 sem haldið verður í Menningarhúsinu Bergi, Dalvíkurbyggð, 26. mars næstkomandi.
Gert er ráð fyrir því að skráningin opni kl. 11:30 og að þingið verði sett kl. 12:30. Gert er ráð fyrir að þingstörfum ljúki kl. 17:00 sama dag. Boðið verður upp á móttöku og kvöldskemmtun í framhaldi af þingstörfum. Endanleg dagskrá ásamt þinggögnum verður send út þegar nær dregur eða í síðasta lagi 10 dögum fyrir þingið.
Ef þú munt mæta á þingið þá viljum við biðja þig að skrá þig til leiks með því að smella hér. Ef þú sérð fram að geta ekki mætt þá biðjum við þig um að sjá til þess að varafulltrúi þinn sé boðaður til að tryggja lögmæti þingsins.
Þingið er opið öllum þó aðeins þingfulltrúar hafi rétt til greiðslu atkvæða og viljum við sérstaklega hvetja allt sveitarstjórnarfólk í landshlutanum til að mæta. Á þinginu verða m.a. ávörp gesta og fleira áhugavert fyrir sveitarstjórnarfólk á Norðurlandi eystra.
Fyrir þá þingfulltrúa sem vilja gista þá eru fjölbreyttir gistimöguleikar á Dalvík.
Ef einhverjar spurningar vakna þá hikið ekki við að hafa samband!
Dagskrá og gögn þingsins verður birt hér á síðunni þegar nær dregur.