Fara í efni

Verkfærakistan

Stoðefni 

Hér í verkfærakistunni má finna ýmislegt nytsamlegt sem getur verið góður stuðningur fyrir frumkvöðla og aðra.

Fræðsla um gerð viðskiptaáætlana
Fræðsla um gerð markaðsáætlana
Viðskiptamódel  
Verkáætlun stoðefni

Creative Business Model Toolkit

Markmiðið viðskiptalíkansins er að veita skapandi frumkvöðlum hjálp við að:
• Skilja hina aðgreindu þætti sem eru mikilvægastir í viðskiptalíkani, staðsetningu þeirra og
hlutverk í skapandi rekstri
• Hugsa rökrétt um hvernig allir þættir líkansins passa saman og meta hvort hver þáttur fái
næga athygli
• Þróa þekkingu á þeim atriðum viðskiptalíkans sem má kanna betur á seinni þróunarstigum
• Skilja hvenær endurskoða þarf skapandi viðskiptalíkan þegar fyrirtækið vex og breytist
• Kanna hvernig viðskiptalíkön virka í undirgeirum skapandi iðnaðar til að fá hugmyndir fyrir
nýsköpun í viðskiptalíkönum í eigin geira

 

 

Kynningarmyndbönd fyrir frumkvöðla - frá hugmynd að veruleika

Landshlutasamtökin undir forystu Samtaka sveitarfélaga á Suðurnesjum og í samstarfi við Byggðastofnun hafa látið útbúa fræðslumyndbönd með upplýsingum fyrir þá sem ganga með hugmynd í maganum, vilja sækja um styrki, eru að velta fyrir sér rekstarformum fyrirtækja, vilja gera viðskiptaáætlun eða koma sínum rekstri á framfæri og um markaðssetningu á samfélagsmiðlum. Myndböndin eru stutt og gagnleg og fjallar hvert þeirra um afmarkað efni. Hægt er að horfa á myndböndin hér fyrir neðan og eru textaðir á íslensku, ensku og pólsku.


Rekstrarform
Þegar kemur að því að stofna fyrirtæki er mikilvægt að velja rekstrarform sem hentar. Það gæti virkað flókið - en ekki láta flókin orð standa í vegi fyrir stórkostlegri hugmynd. Pantaðu ráðgjöf hjá SSNE og við veitum þér aðstoð.


Styrkir og sjóðir
Vilt þú sækja um styrk til að koma hugmynd þinni áfram? Ráðgjafar SSNE veita stuðning til frumkvöðla á öllum stigum nýsköpunar. Pantaðu ráðgjöf hjá okkur.


Viðskiptaáætlun
Hvernig geri ég viðskiptaáætlun? - SSNE veitir stuðning til fyrirtækja og frumkvöðla á öllum stigum nýsköpunar.

 


Virði vörunnar
Ert þú með viðskiptahugmynd? Hvaða virði hefur varan eða þjónustan? Hvaða vanda leysir hún og hvaða þörf er hún að uppfylla?


Markaðssetning
Markaðssetning er lykilþáttur í rekstri fyrirtækja. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir því hvað það er sem viðskiptavinurinn þarfnast svo hægt sé að uppfylla þarfir hans.


Markaðssetning á samfélagsmiðlum
Markaðssetning á samfélagsmiðlum hefur það fram yfir aðra miðla að auðvelt er að greina árangurinn og yfirleitt er kostnaður lítill. En hvaða miðill hentar þér og þínum viðskiptavinum?


Hafðu samband við atvinnuráðgjafa og bókaðu viðtal, það kostar ekkert.

Bóka tíma hjá atvinnuráðgjafa