Loftslagsstefna Norðurlands eystra 2026

Heildstæð Loftslagsstefna Norðurlands eystra tók gildi 26.mars 2026. Með stefnunni setja sveitarfélögin á Norðurlandi eystra sameiginleg og metnaðarfull markmið í loftslagsmálum.
Loftslagsstefnan var unnin í miklu og góðu samráði allra sveitarfélaganna innan SSNE og er hluti af RECET verkefninu um orkuskipti í dreifðum byggðum sem er leitt af Eimi. Stefnan var samþykkt af öllum sveitarstjórnum innan SSNE, af stjórn SSNE og einnig á ársþingi SSNE.
Stefnan er aðgerðamiðuð og felur í sér skýrar og markvissar aðgerðir fyrir bæði sveitarfélögin og landshlutann í heild. Aðgerðirnar verða endurskoðaðar á tveggja ára fresti til að tryggja framgang og stöðugar framfarir.

Norðurland eystra stendur frammi fyrir áskorunum sem fylgja loftslagsbreytingum, en einnig tækifærum til framþróunar. Með sameiginlegri sýn, staðbundinni þekkingu og samvinnu sveitarfélaganna er lögð áhersla á að loftslagsaðgerðir og byggðaþróun geti farið hönd í hönd, í þágu samfélags, náttúru og atvinnulífs.


Markmið stefnunnar
Sveitarfélögin ganga í takt við landsbundin loftslagsmarkmið Íslands og stefna að:
- 50–55% samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2035 (miðað við 2005),
- kolefnishlutleysi fyrir árið 2040, og
- fullum orkuskiptum í samgöngum fyrir árið 2050.
Aðgerðir og framfylgd
Aðgerðir stefnunnar ná m.a. til orkuskipta í samgöngum, vistvæns samgöngukerfis, endurheimtar votlendis, sjálfbærrar landnotkunar og aukinnar kolefnisbindingar. Framfylgd stefnunnar verður í höndum SSNE í samstarfi við sveitarfélögin, með reglulegri mælingu árangurs í gegnum rafrænt losunarbókhald sem verður gert opinbert.

Loftslagsstefnan er ekki endapunktur heldur upphaf samstillts átaks og aukinnar samvinnu í loftslagsmálum á Norðurlandi eystra.
Stefnuna í heild sinni má nálgast hér.