Fara í efni

Fréttasafn

Jan Feb Mar Apr Maí Jún Júl Ágú Sep Okt Nóv Des
Heiðar Hrafn Halldórsson

„Tungumál og tækifæri til þátttöku eru lykilþættir í inngildingu“

Heiðar Hrafn Halldórsson hjá Þekkingarneti Þingeyinga kynnti niðurstöður nýrrar viðtalsrannsóknar meðal erlendra íbúa á Norðurlandi eystra á föstudagsfundi SSNE í dag. Rannsóknin ber heitið Í átt að inngildingu og byggir á viðtölum við 30 íbúa frá 18 löndum sem að meðaltali hafa búið á Íslandi í rúm tíu ár. Öll bjuggu þau innan starfssvæðis SSNE.

Frá stjórn og starfsfólki SSNE vegna sjóslyss

Samfélagið í Norðurþingi og á Norðurlandi eystra hafa orðið fyrir miklu áfalli við það hörmulega sjóslys sem varð í gær. Stjórn og starfsfólk SSNE vottar fjölskyldum og ástvinum þeirra þriggja skipverja Jökuls ÞH sem fórust sína dýpstu samúð. Hugur okkar er hjá þeim skipverjum sem björguðust, fjölskyldum þeirra og öllum þeim sem eiga um sárt að binda í dag.

Vefmiðlar á Norðurlandi eystra hvattir til samstarfs um sýnileika viðburða

SSNE leitar eftir samstarfi við vefmiðla á Norðurlandi eystra í tengslum við verkefnið Menningarbyggðin, sem hefur meðal annars það að markmiði að auka sýnileika menningar og viðburða á svæðinu.

69 gönguleiðir á Norðurlandi aðgengilegar á einum stað

Markaðsstofa Norðurlands hefur unnið að því að gera upplýsingar um gönguleiðir á Norðurlandi aðgengilegar á einum stað á ferðavefnum Upplifðu Norðurland. Verkefnið hefur hlotið styrk úr Sóknaráætlun Norðurlands eystra undanfarin tvö ár.

Farsældaráætlun Norðurlands eystra staðfest

Áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna á Norðurlandi eystra 2027–2030 hefur nú verið staðfest. Staðfestingin markar mikilvægan áfanga í sameiginlegu starfi að farsæld barna og fjölskyldna á svæðinu.

Stjórn SSNE lýsir miklum vonbrigðum með niðurstöðu fundar með innviðaráðherra

SSNE kallar eftir fyrirsjáanlegum ferðakostnaði og bættri Loftbrú.

Föstudagsfundur SSNE: Reynsla erlendra íbúa af búsetu á Norðurlandi eystra til umræðu

Á næsta föstudagsfundi SSNE kynnir Þekkingarnet Þingeyinga niðurstöður rannsóknarinnar Í átt að inngildingu: Viðtalsrannsókn meðal erlendra íbúa á Norðurlandi eystra.

Gulleggið opnar fyrir skráningar – kynningarviðburður á Akureyri

Nú hefur verið opnað fyrir skráningar í Gulleggið, stærstu frumkvöðlakeppni Íslands, þar sem tvær milljónir króna eru í verðlaun. Af því tilefni verður efnt til opins kynningarviðburðar á Akureyri þar sem áhugasöm geta kynnt sér keppnina og tækifærin sem hún býður upp á.

Nýtt fjölmenningarráð SSNE komið til starfa

Nýtt fjölmenningarráð SSNE kom saman til fyrsta fundar á dögunum. Ráðið er samstarfsvettvangur sveitarfélaga á Norðurlandi eystra þar sem áhersla er lögð á að miðla reynslu, efla samráð og styðja við inngildingu og virka þátttöku fólks af erlendum uppruna.
Hjalti Páll Þórarinsson stýrir Flugklasanum Air 66N hjá Markaðsstofu Norðurlands (Mynd: Örlygur Hnefill)

„Norðurland er með þessu flugi betri kostur til búsetu og atvinnuuppbyggingar“

Beint millilandaflug til Norðurlands styrkir ferðaþjónustu, bætir lífskjör íbúa og skapar grundvöll fyrir frekari atvinnuuppbyggingu. Þetta kom fram í máli Hjalta Páls Þórarinssonar, sem stýrir Flugklasanum Air 66N hjá Markaðsstofu Norðurlands, á Allsherjarfundi landshlutasamtaka, markaðsstofa landshlutanna og Byggðastofnunar í Borgarnesi í morgun. Hann kallaði eftir skýrri ákvörðun stjórnvalda um að opna nýja gátt inn í landið og fylgja henni eftir með fjárfestingu og langtímaáætlun.
Getum við bætt síðuna?