Hátíðin fer fram á Húsavík dagana 25.–26. september og í ár er sjónum beint að einu stærsta viðfangsefni samtímans: orku. Orka snýst ekki aðeins um rafmagn og innviði heldur einnig um hugmyndir, sköpunarkraft, samfélög og þær breytingar sem móta framtíð okkar.
Sumarið stendur sem hæst og víða er líf og fjör um allt Norðurland eystra. Á sama tíma er ágætt að taka smá stund og staldra við, líta yfir farinn veg en einnig horfa fram á spennandi verkefni haustsins – já og auðvitað sumarfríið framundan!
Lokaskýrsla B9 verkefnisins um menningarhús á landsbyggðinni hefur nú verið gefin út. Markmið verkefnisins var að safna og greina upplýsingar um menningarhús og menningarstarfsemi víðs vegar um landið og skapa grunn að frekara samstarfi og þekkingarmiðlun.
Stjórn Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) ítrekar mikilvægi þess að Akureyrarflugvöllur verði áfram byggður upp sem ein af alþjóðlegum gáttum Íslands. Jafnframt leggur stjórn SSNE ríka áherslu á að fjármögnun Flugþróunarsjóðs verði tryggð til framtíðar.