Fara í efni

Fréttasafn

Jan Feb Mar Apr Maí Jún Júl Ágú Sep Okt Nóv Des
Ari Páll Pálsson með veggspjald heimildarmyndarinnar Eyríkis. Ari leiðbeindi aðstandendum myndarinnar við umsókn í Uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra.

„Gefandi að sjá verkefnin raungerast og springa út“

Ari Páll Pálsson hefur aðstoðað umsækjendur í Uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra frá því sjóðurinn hóf göngu sína árið 2015. Eitt þeirra verkefna sem hann hefur fylgt frá hugmynd að veruleika er heimildarmyndin Eyríki, sem nýverið var frumsýnd og hefur vakið umræðu um samfélagið í Grímsey og framtíð eyjarinnar.
Dagana 25. og 26. september komu þátttakendur, ráðgjafar og samstarfsaðilar Startup Landsins saman í Borgarnesi í tveggja daga vinnustofu. Megináhersla var lögð á tengslamyndun, skapandi hugsun og áframhaldandi þróun á verkefnum þátttakenda.

Öflugur hópur frumkvöðla valinn í Startup Landið 2026

Fjórtán fjölbreytt nýsköpunarverkefni af öllu landinu hafa verið valin til þátttöku í viðskiptahraðlinum Startup Landið. Hraðallinn er sérstaklega hannaður til að efla atvinnulíf, verðmætasköpun og nýsköpun á landsbyggðinni. Startup Landið veitir frumkvöðlum og smáfyrirtækjum utan höfuðborgarsvæðisins verkfæri, fræðslu og sérfræðiaðstoð til að þróa hugmyndir sínar áfram. Þátttakendur sækja vinnustofur, fá leiðsögn frá reynslumiklum mentorum og vinna að mótun viðskiptalíkana, fjármögnun og markaðssetningu. Hraðallinn stendur í sjö vikur og munu teymi kynna verkefni sín á lokaviðburði á Selfossi þann 6. nóvember.
Mynd: MN

Hvernig skrifa ég umsókn í LIFE?

Landstengiliðir LIFE áætlunarinnar hjá Rannís leggja land undir fót og heimsækja Akureyri í október. Tilgangur ferðarinnar er að bjóða upp á námskeið fyrir umsækjendur sem hyggjast sækja um í LIFE árið 2027, sem og að bjóða upp á fundi í persónu með mögulegum umsækjendum.
Fundað með þingmönnum Norðausturkjördæmis í kjördæmaviku. Mynd: Albertína Friðbjörg Elíasdóttir

Pistill framkvæmdastjóra: Farsæld, nýsköpun og mikilvægi öflugrar hagsmunagæslu

Haustin eru alla jafna annasamur tími og var septembermánuður einstaklega öflugur í ár. Mánuðurinn var óvenju viðburðaríkur hjá SSNE og einkenndist öðru fremur af samtali, samstöðu og skýrri sýn á þau verkefni sem fram undan eru á Norðurlandi eystra.

Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað

Uppbyggingarsjóður er eitt mikilvægasta tæki Sóknaráætlunar Norðurlands eystra til að styðja við frumkvæði fólks á svæðinu. Þar mætast atvinnuþróun, nýsköpun, menning og uppbygging samfélaganna okkar. Á hverju ári fá fjölbreytt verkefni um allt Norðurland eystra stuðning til að komast af hugmyndastigi og í framkvæmd.
Getum við bætt síðuna?