Öflugur hópur frumkvöðla valinn í Startup Landið 2026
Öflugur hópur frumkvöðla valinn í Startup Landið 2026
Öflugur hópur frumkvöðla valinn í Startup Landið 2026
Fjórtán fjölbreytt nýsköpunarverkefni af öllu landinu hafa verið valin til þátttöku í viðskiptahraðlinum Startup Landið. Hraðallinn er sérstaklega hannaður til að efla atvinnulíf, verðmætasköpun og nýsköpun á landsbyggðinni.
Startup Landið veitir frumkvöðlum og smáfyrirtækjum utan höfuðborgarsvæðisins verkfæri, fræðslu og sérfræðiaðstoð til að þróa hugmyndir sínar áfram. Þátttakendur sækja vinnustofur, fá leiðsögn frá reynslumiklum mentorum og vinna að mótun viðskiptalíkana, fjármögnun og markaðssetningu.
Hraðallinn stendur í sjö vikur og munu teymi kynna verkefni sín á lokaviðburði á Selfossi þann 6. nóvember.
Breidd og hugvit um allt land
Þátttakendur ársins endurspegla mikla fjölbreytni í íslenskri nýsköpun, allt frá sjálfbærri matvælaframleiðslu og heilsueflingu til tækni, ferðaþjónustu og annarra þjónustulausna.
Eftirtalin verkefni taka þátt í Startup Landinu 2026:
Ullarkögglar (Suðurland – SASS)
Framleiðsla á lífrænum áburði úr íslenskri ull sem annars færi forgörðum, í anda hringrásarhagkerfisins.
Þátttakandi: Alice Sowa.
Korngrís Bjór (Suðurland – SASS)
Nýsköpun í bruggun þar sem stefnt er að framleiðslu á bjór eingöngu úr íslensku byggi.
Þátttakandi: Petrína Jónsdóttir.
Hólmur Heilsa og Steinunn Saunagus (Suðurnes – SSS)
Uppbygging heilsu- og gufubaðsupplifunar sem eflir vellíðan og ferðaþjónustu á svæðinu.
Þátttakandi: Unnur Svava Sverrisdóttir.
Kraftý Café (Suðurnes – SSS)
Nýstárlegt kaffihús og upplifun sem efla samfélag og menningarlíf.
Þátttakendur: Alexandra Ósk Laxdal og Inga Hrönn Kristjánsdóttir.
Byrjum / Fjarheilbrigðistorg (Vestfirðir – VF)
Miðlægur stafrænn vettvangur sem sameinar fjarheilbrigðis- og velferðarþjónustu sérfræðinga til að tryggja íbúum landsbyggðarinnar jafnt aðgengi að þjónustu.
Þátttakandi: Þóra Kristín Bergsdóttir.
Valkyrju Ævintýri (Vestfirðir – VF)
Uppbygging ferðaþjónustu og upplifunar á Vestfjörðum allt árið um kring.
Þátttakandi: Jake Lampe.
Snigill – smár snigill, stórt prótein (Vesturland – SSV)
Sniglarækt sem opnar nýjar, sjálfbærar leiðir í matvæla- og próteinframleiðslu á Íslandi.
Þátttakandi: Sigríður Halldóra Gunnarsdóttir.
Sif's Hair Atelier (Vesturland – SSV)
Sérhæfðar og náttúrulegar hárlausnir í háum gæðaflokki sem efla sjálfstraust kvenna sem glíma við hármissi.
Þátttakandi: Laura Martin Merino.
Okkar norður ehf. (Norðurland vestra – SSNV)
Samstarfs- og markaðslíkan fyrir fyrirtæki og stofnanir sem nýtir stafræna miðlun til að efla sýnileika svæðisins.
Þátttakandi: Sigurjón Arthur Friðjónsson.
BlómAría (Norðurland vestra – SSNV)
Nýsköpunarverkefni á sviði blómaræktar og hönnunar í heimabyggð.
Þátttakandi: Anna Sif Ingimarsdóttir.
Dálæti (Austurland – Austurbrú)
Hönnun og framleiðsla á séríslenskum skartgripum og vörum sem vekja fortíðarþrá og kátínu.
Þátttakandi: Guðdís Jóhannadóttir.
Fjarðarhjól ehf. (Austurland – Austurbrú)
Hjóla- og afþreyingarferðaþjónusta sem nýtir náttúru og landslag Austfjarða.
Þátttakandi: Árni Magnús Magnusson.
Syðra Holt ehf. (Norðurland eystra – SSNE)
Lífrænt kaffihús, vinnustofa og framleiðslueldhús fyrir afurðir af býlinu í Svarfaðardal.
Þátttakandi: Alejandra Gabriela Soto Hernández.
AllergyID (Norðurland eystra – SSNE)
Tæknilausn og smáforrit sem auðvelda fólki með fæðuóþol og ofnæmi að finna matvæli og þjónustu við hæfi.
Þátttakandi: Bjarni Þór Ævarsson.
Efling landsbyggðarinnar
Startup Landið hefur það að markmiði að efla tengslanet frumkvöðla og veita þeim aðgang að sérfræðiþekkingu og verkfærum til að byggja upp sjálfbæran rekstur. Með stuðningi við fjölbreyttar hugmyndir um allt land er lagður grunnur að fjölbreyttum störfum, aukinni verðmætasköpun og meiri byggðafestu.