Fara í efni

Góð þátttaka í Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra

Góð þátttaka í Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra

Umsóknarfresti í Uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra er lokið og alls bárust 156 umsóknir í sjóðinn. Sótt var um styrki að fjárhæð samtals um 287 milljónir króna, en áætlað er að um 81 milljón króna verði til úthlutunar.

Umsóknirnar skiptast þannig að 87 umsóknir bárust vegna menningar- og samfélagsverkefna, 58 vegna atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna og 11 umsóknir um stofn- og rekstrarstyrki á sviði menningar.

Tölurnar sýna mikinn áhuga á sjóðnum og fjölbreytta verkefnavinnu á Norðurlandi eystra. Sótt er um rúmlega þrefalda þá fjárhæð sem áætlað er að verði til úthlutunar. Fram undan er yfirferð og mat umsókna áður en ákvörðun verður tekin um úthlutun úr sjóðnum.

SSNE þakkar öllum umsækjendum fyrir þátttökuna og jafnframt öllum þeim sem nýttu sér ráðgjöf og upplýsingagjöf starfsfólks í aðdraganda umsóknarfrestsins.

Áætlað er að niðurstaða úthlutunar liggi fyrir í lok nóvember.

Getum við bætt síðuna?