„Gefandi að sjá verkefnin raungerast og springa út“
„Gefandi að sjá verkefnin raungerast og springa út“
Ari Páll Pálsson hefur aðstoðað umsækjendur í Uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra frá því sjóðurinn hóf göngu sína árið 2015. Eitt þeirra verkefna sem hann hefur fylgt frá hugmynd að veruleika er heimildarmyndin Eyríki, sem nýverið var frumsýnd og hefur vakið umræðu um samfélagið í Grímsey og framtíð eyjarinnar.
Ari tekur flesta daga á móti fólki með stórar hugmyndir. Hjá honum fær það upplýsingar um stuðningsmöguleika, leiðbeiningar við umsóknargerð og aðstoð við að móta verkefnin.
„Fólk er mikið að leita upplýsinga um hvernig styrkir eru í boði og hvað er styrkhæft,“ segir Ari. Þá leiti margir eftir yfirlestri og ráðleggingum við skrif umsókna.
Á þeim rúma áratug sem Ari hefur unnið við Uppbyggingarsjóð hefur hann komið að hundruðum verkefna. Ráðgjöfin gefur honum tækifæri til að kynnast hugmyndum á frumstigi og fylgjast með þeim taka á sig mynd.
„Það er mjög gefandi að sjá verkefnin sem maður kynnist á frumstigum raungerast og springa út,“ segir hann.
Frá umsókn að frumsýningu
Heimildarmyndin Eyríki, eftir Nikolai Galitzine, hlaut styrk úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra. Ari leiðbeindi aðstandendum hennar við umsóknargerðina. Leikstjórinn, sem talar ekki íslensku, hefur sérstaklega rætt um mikilvægi þess að geta fengið ráðgjöf og stuðning á ensku, en Ari hefur veitt slíka ráðgjöf frá upphafi.
Myndin fjallar um Grímsey, samfélagið þar og sterk tengsl íbúanna við eyjuna. Hún er óður til Grímseyinga og ástar þeirra á heimabyggðinni, en veitir jafnframt innsýn í þær áskoranir sem lítið og einangrað samfélag stendur frammi fyrir.
Eyríki var frumsýnd á Akureyrarvöku við góðar undirtektir. Nánast fullt var í salnum og stór hluti gesta voru Grímseyingar eða fólk með rætur í eyjunni. Að sýningu lokinni buðu aðstandendur myndarinnar til samtals með Berglindi Ósk Guðmundsdóttur, bæjarstjóra Akureyrarbæjar.
„Myndin Eyríki er gott dæmi um það, verkefni sem verður svo að einhverju stærra. Það var sterk tilfinning að sitja í salnum á frumsýningunni, horfa á þetta fallega verk um Grímsey, og svo að hlusta á það samtal sem var eftir sýninguna,“ segir Ari.
Myndin hefur síðan verið sýnd í Grímsey, á Húsavík og er nú í sýningum í Bíó Paradís í Reykjavík. Hún hefur þannig náð til áhorfenda víða og orðið kveikja að samfélagsumræðu um stöðu Grímseyjar. Stefnt er að sýningu myndarinnar á RÚV.
Ráðgjöf sem hjálpar hugmyndum áfram
Eyríki er gott dæmi un hvernig stuðningur Uppbyggingarsjóðs og ráðgjöf starfsfólks SSNE geta hjálpað góðum hugmyndum að verða að veruleika. Þau sem eru með hugmynd að verkefni eða vinna að umsókn í Uppbyggingarsjóð eru hvött til að leita til starfsfólks SSNE og nýta þá ráðgjöf sem þar er í boði. Umsóknarfrestur er til klukkan 14:00 þann 21. október.