Fara í efni

Fréttasafn

Jan Feb Mar Apr Maí Jún Júl Ágú Sep Okt Nóv Des

Ungmennaþing SSNE 2026

Ungmennaþing SSNE 2026 fór fram dagana 14.–15. apríl á Fosshótel Húsavík. Fimmtíu ungmenni mættu frá 10 sveitarfélögum á Norðurlandi eystra ásamt starfsfólki ungmennaráðanna og gestum. Markmið þingsins var að efla ungmennin í hlutverki sínu sem virkir þátttakandi í ungmennaráðum sveitarfélaganna og þannig gera ungmennaráðin gildandi í ákvarðanatöku sveitarfélaganna.

Mikill áhugi á Norðansprotanum – 40 umsóknir bárust frá öllu Norðurlandi

Alls bárust 40 umsóknir í nýsköpunarkeppnina Norðansprotann víðsvegar að af Norðurlandi. Norðansprotinn er nú haldinn í þriðja sinn, en vonandi verður keppnin árlegur viðburður héðan í frá.

Mikill framboðsáhugi á Norðurlandi eystra: 32 listar og 508 frambjóðendur í átta sveitarfélögum

Framboðsáhugi á Norðurlandi eystra virðist mikill í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga sem fara fram á landinu þann 16. maí næstkomandi.

Rafrænn kynningarfundur um nýja áætlun Uppbyggingarsjóðs EES

Rannís, í samstarfi við utanríkisráðneytið og skrifstofu Uppbyggingarsjóðs EES í Brussel (FMO), stendur fyrir rafrænum kynningarfundi um möguleika íslenskra aðila til þátttöku í verkefnum á vegum Uppbyggingasjóðs EES á nýju sjóðstímabili.

Niðurstöður Fyrirtækjaþings Akureyrar 2026

Fyrirtækjaþing Akureyrar fór fram í Hofi í mars og var þriðja þingið af þessu tagi.
Bankinn er safn 49 aðgerða sem nýtast sem grunnur að heildstæðum loftslagsáætlunum.

Nýr aðgerðabanki loftslagsmála fyrir íslensk sveitarfélög

Aðgerðabanki RECET er hagnýtt verkfæri fyrir íslensk sveitarfélög við gerð aðgerðaáætlana í loftslags- og orkuskiptamálum.

Upptakturinn styrkir tónsköpun barna og ungmenna á Norðurlandi

Upptakturinn er tónsköpunarverkefni sem gefur börnum og ungmennum tækifæri til að þróa eigin tónlist og heyra hana flutta af atvinnuhljóðfæraleikurum. Verkefnið er styrkt af Sóknaráætlun Norðurlands eystra

Umsóknarfrestur í Norðansprotann 15. apríl

Norðansprotinn er nýsköpunarkeppni þar sem leitað er að áhugaverðustu nýsköpunarhugmyndum Norðurlands. Keppnin fer fram dagana 15.-22. apríl og lýkur með úrslitum sem haldin verða í Messanum í Drift EA. Landvættir slhf., fjárfestingasjóður í rekstri Axum verðbréfa hf. veitir verðlaunafé upp á 1.000.000 kr.
Loftslagsstefna Norðurlands eystra er fyrsta heildstæða og landshlutabundna loftslagsstefnan á landsbyggðinni.

Tímamót í loftslagsmálum á Norðurlandi eystra

Heildstæð og landshlutabundin loftslagsstefna fyrir Norðurland eystra.

Pistill framkvæmdastjóra

Marsmánuður var óvenju viðburðaríkur hjá SSNE. Undirbúningur og framkvæmd Ársþings SSNE 2026 setti eðlilega nokkuð mark sitt á mánuðinn, enda var þingið haldið 26. mars og fór að lokum fram á Teams vegna óhagstæðs veðurs.
Getum við bætt síðuna?