Íbúafundir sem haldnir voru dagana 26. og 27. janúar í Lundi og á Raufarhöfn í tengslum við tilraunaverkefnið Brothættar byggðir II (BbII) heppnuðust afar vel.
Nú er komið að öðrum viðburðinum í ár í fyrirlestraröðinni „Forvitnir frumkvöðlar“ sem landshlutasamtökin standa sameiginlega að. Þriðjudaginn 3. febrúar klukkan 12.00 munum við að þessu sinni beinum við sjónum að einu mikilvægasta en jafnframt flóknasta viðfangsefni frumkvöðla: Fjármögnun.
Byggðastofnun auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Byggðarannsóknasjóði. Tilgangur sjóðsins er að efla byggðarannsóknir og veita styrki til rannsókna- og þróunarverkefna sem stuðlað geta að jákvæðri byggðaþróun og bæta þekkingargrunn fyrir stefnumótun, áætlanagerð og aðgerðir á sviði byggðamála.
Byggðastofnun óskar eftir tilnefningum um handhafa samfélagsviðurkenningarinnar Landstólpans 2026. Viðurkenningunni fylgir listmunur hannaður af íslenskum listamanni auk verðlaunafjár að upphæð kr. 1.000.000.-