Fara í efni

SSNE meðal stofnfélaga í Ignite Nordic á Íslandi

SSNE meðal stofnfélaga í Ignite Nordic á Íslandi

Nýverið var verkefnið Ignite Nordic formlega sett af stað á Íslandi undir stjórn Driftar EA á Akureyri. Markmið verkefnisins er að efla nýsköpun með því að tengja saman frumkvöðla, fyrirtæki og opinbera aðila og skapa þannig ný tækifæri til samstarfs og verðmætasköpunar.

Ignite Nordic er norrænt samstarfsverkefni sem auðveldar fyrirtækjum að nýta nýsköpun í rekstri sínum á sama tíma og frumkvöðlar og sprotafyrirtæki fá tækifæri til að þróa lausnir sínar í samstarfi við raunverulega viðskiptavini. Verkefnið styður einnig við fyrirtæki og stofnanir við að finna nýjar lausnir við áskorunum í starfsemi sinni.

SSNE er meðal stofnfélaga verkefnisins á Íslandi og leggur því lið við uppbyggingu þessa nýja samstarfsvettvangs. Aðrir stofnfélagar eru Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV), Háskólafélag Suðurlands (HFSU), KLAK, Sjávarklasinn, IceBAN og Fjársýslan. Verkerfninu er svo stýrt af Drift EA, en verkefnið er meðal annars fjármagnað af menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.

Verkefnið er styrkt úr Sóknaráætlun Norðurlands eystra sem áhersluverkefni. Þátttaka SSNE í Ignite Nordic fellur vel að áherslum samtakanna um að efla nýsköpun, styrkja tengsl atvinnulífs og menntastofnana og skapa ný tækifæri fyrir fyrirtæki og frumkvöðla á Norðurlandi eystra. 

Getum við bætt síðuna?