Nýr Púls kominn út: Þjónustu- og atvinnusókn á Norðurlandi eystra
Nýr Púls kominn út: Þjónustu- og atvinnusókn á Norðurlandi eystra
Fimmta tölublað ársins 2026 af Púlsinum – Norðurland eystra í tölum er komið út. Að þessu sinni fjallar Vífill Karlsson um þjónustu- og atvinnusókn íbúa Norðurlands eystra og ber saman niðurstöður nýrrar könnunar Byggðastofnunar við fyrri mælingar.
Greiningin sýnir skýrt mikilvægi sterkra þjónustukjarna fyrir þróun byggða. Íbúar á Akureyri sækja hvað minnst þjónustu út fyrir sitt þjónustusvæði eða um 3,2%, en íbúar Hríseyjar sækja þjónustu mest utan síns svæðis, rúmlega 60%. Grenivík, Mývatn og Bakkafjörður fylgja þar á eftir. Niðurstöðurnar undirstrika jafnframt hlutverk Akureyrar sem lykilkjarna þjónustu og verðmætasköpunar fyrir landshlutann.
Þegar þróunin milli kannana er skoðuð kemur í ljós að þjónustusókn út fyrir þjónustusvæði hefur dregist saman á nokkrum stöðum, þar á meðal á Raufarhöfn, í Grenivík, á Akureyri og í Hrísey. Á sama tíma hefur hún aukist meðal annars í Ólafsfirði, á Siglufirði og Þórshöfn.
Í umfjöllun um vinnumarkaðinn kemur fram að atvinnusókn út fyrir búsetusvæði er mest á Ólafsfirði og Bakkafirði. Um 30% íbúa Ólafsfjarðar sækja vinnu utan síns búsetusvæðis og tæplega 29% íbúa Bakkafjarðar. Lægst eru hlutföllin á Siglufirði og Grenivík, þar sem atvinnusókn mælist engin samkvæmt könnuninni, en hún er einnig lág á Akureyri og Húsavík. Höfundur veltir því upp hvort niðurstöðurnar endurspegli áhrif nokkurra öflugra héraðskjarna á Íslandi. Gögnin benda til þess að vinnumarkaður sé háðari slíkum kjörnum en þjónustumarkaður, meðal annars vegna þess að atvinnusókn kallar á tíðari ferðir en þjónustusókn.
Púlsinn er útgáfuröð SSNE sem birtir reglulega tölfræðilega greiningu og fróðleik um samfélag, atvinnulíf og byggðaþróun á Norðurlandi eystra. Markmiðið er að gera gögn og rannsóknir um þróun landshlutans aðgengilegri fyrir sveitarfélög, fyrirtæki og áhugafólk.