Fara í efni

Pistill framkvæmdastjóra

Pistill framkvæmdastjóra

Sumarið stendur sem hæst og víða er líf og fjör um allt Norðurland eystra. Á sama tíma er ágætt að taka smá stund og staldra við, líta yfir farinn veg en einnig horfa fram á spennandi verkefni haustsins – já og auðvitað sumarfríið framundan!

Fyrsti fundur nýrrar stjórnar SSNE var haldinn í gær, 30. júní, og vil ég fyrir hönd starfsfólks SSNE nota tækifærið og bjóða þau hjartanlega velkomin til starfa. Þetta er öflugur hópur sem mun starfa með okkur til ársins 2030. Stjórnin er samsett af fulltrúum frá öllum sveitarfélögum innan starfssvæðis SSNE, en Akureyrarbær er með tvo fulltrúa. Fyrir áhugasöm þá má kynna sér nýja stjórn hér.

Síðustu vikur hafa annars að venju verið fjölbreyttar í starfsemi SSNE og má þar meðal annars nefna fjölmörg samtöl við sveitarstjórnarfólk og atvinnulíf, þátttöku í ráðstefnum og viðburðum auk fjölmargra breytinga innanhúss. Starfsfólk SSNE sótti m.a. ráðstefnuna Skapandi Austurland í júní, haldin var vel heppnuð menningarsúpa á Siglufirði og haldinn sameiginlegur vinnudagur umhverfisstarfsfólks SSNE og SSNV á Norðurlandi eystra sem styrkir auðvitað samvinnu þvert á landshluta.

Þá er tilefni til að fagna því aftur að fyrsta skóflustungan að nýrri legudeild Sjúkrahússins á Akureyri var tekin 18. júní síðastliðinn – mikilvægur áfangi í uppbyggingu heilbrigðisþjónustu á svæðinu, sem nýr formaður stjórnar SSNE, Heimir Örn Árnason fjallaði um í grein af því tilefni.

Eins og svo víða á sumrin verður minna um að vera á skrifstofu SSNE eftir miðjan júlí og verða skrifstofur lokaðar tímabundið frá 13.-4. ágúst, en flest starfsfólk okkar verður í sumarleyfi á þessum tíma. Þá má eftir sem áður senda erindi til starfsfólks í tölvupósti sem svarar þegar það snýr aftur úr sumarleyfi.

Það verður svo nóg um að vera þegar við komum úr sumarfríi og stefnir í viðburðaríkt haust. Þar vil ég vekja sérstaka athygli á tveimur dagsetningum: Farsældardagurinn sem verður haldinn 4. september í Hofi á Akureyri og Haustþing SSNE sem verður haldið á Dalvík þann 9. september. Einnig hvet ég ykkur til að kynna ykkur viðburði landshlutans í viðburðadagatali Norðurlands, þar sem fjölbreytt og spennandi dagskrá er fram undan.

Þá má minna á að Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra verður opinn fyrir umsóknir frá 16. september til 21. október kl. 14, og hvet ég alla sem hafa hugmyndir að verkefnum sem styrkja atvinnulíf og samfélag að sækja um. Þá er opið fyrir umsóknir í hraðalinn StartupLandið sem er öllum opinn – en þar er umsóknarfrestur til 1. september. Þar liggja fjölmörg tækifæri til nýsköpunar og vaxtar sem mikilvægt er að nýta.

Að lokum vil ég þakka öllum samstarfsaðilum fyrir gott og öflugt starf á fyrri hluta ársins. Ég hlakka til áframhaldandi samstarfs og vonast til að sjá ykkur sem flest á viðburðum haustsins.

Með kærri kveðju og ósk um ánægjulegt sumar!

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir
Framkvæmdastjóri SSNE

Getum við bætt síðuna?