Fara í efni

Ný stjórn SSNE fundaði á Svalbarðsströnd

Ný stjórn SSNE fundaði á Svalbarðsströnd

Ný stjórn Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) kom saman til fundar í Valsársskóla á Svalbarðsströnd þriðjudaginn 11. ágúst. Fundurinn var sá 85. í röðinni hjá stjórn SSNE og jafnframt einn af fyrstu fundum stjórnarinnar á nýju kjörtímabili. Stjórn SSNE fundar alla jafna í fjarfundi en reynt er að halda staðfundi u.þ.b. tvisvar sinnum á ári.

Á fundinum voru meðal annars lagðar fram tillögur vegna Haustþings SSNE 2026 sem haldið verður í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík þann 9. september næstkomandi. Stjórn samþykkti drög að dagskrá þingsins og endurskoðaða fjárhagsáætlun samtakanna, sem nú verður kynnt þingfulltrúum og öðrum gestum á næstu vikum. Stjórnin fékk einnig kynningu á fimm mánaða uppgjöri SSNE, sem sýnir að rekstur samtakanna hefur verið í samræmi við fjárhagsáætlun á fyrri hluta ársins.

Meðal annarra mála á fundinum var kynning á loftslagsstefnu Norðurlands eystra og eftirfylgni hennar, auk þess sem farið var yfir stöðu mála vegna fyrirhugaðra breytinga á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits á landinu. Stjórn SSNE samþykkti jafnframt umsagnir um nokkur mál í Samráðsgátt stjórnvalda, þar á meðal Hvítbók um byggðamál, efnistök grænbókar um fjarskipti og netöryggi og stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku. Umsagnirnar verða aðgengilegar á Samráðsgátt stjórnvalda í vikunni.

Fundargerð fundarins verður birt á heimasíðu SSNE þegar gengið hefur verið frá henni.

Getum við bætt síðuna?