Fara í efni

Menningarhús á landsbyggðinni kortlögð

Menningarhús á landsbyggðinni kortlögð

Skýrsla um kortlagningur menningarhúsa á landsbyggðunum hefur verið birt og markar þar með lok mikilvægrar samvinnu landshlutasamtaka og menningarfulltrúa um kortlagningu menningarinnviða víðs vegar um landið. Í verkefninu var safnað saman upplýsingum um fjölbreytt menningarhús, menningarmiðstöðvar, safna- og sýningarrými, félagsheimili og aðra staði sem gegna lykilhlutverki í menningarstarfi landsbyggðarinnar.

Markmið verkefnisins var að skapa yfirsýn yfir þá aðstöðu sem stendur til boða fyrir menningarstarf og viðburðahald utan höfuðborgarsvæðisins. Niðurstöðurnar sýna fjölbreytt og öflugt net menningarhúsa sem styður við listir, menningararf, samfélagsstarf og skapandi greinar um allt land.

Í framhaldinu hafa komið fram hugmyndir um að byggja áfram á verkefninu með þróun sameiginlegs gagnagrunns yfir menningarhús og viðburðarými á landsbyggðinni. Slíkur gagnagrunnur gæti nýst sveitarfélögum, menningarstofnunum, listafólki og verkefnahöfundum við skipulagningu viðburða og eflt samstarf milli landshluta. Fram kemur að bæði ráðuneytið og miðstöðvar listgreina hafi sýnt slíkri áframhaldandi vinnu áhuga.

Vinnan er fjármögnuð úr Stefnumótandi Byggðaáætlun, aðgerð B.09. stefnumótun og hlutverk menningarstofnana. Skýrslan er aðgengileg hér. 

Getum við bætt síðuna?