Nýtt fjölmenningarráð SSNE komið til starfa
Nýtt fjölmenningarráð SSNE komið til starfa
Nýtt fjölmenningarráð SSNE kom saman til fyrsta fundar á dögunum. Ráðið er samstarfsvettvangur sveitarfélaga á Norðurlandi eystra þar sem áhersla er lögð á að miðla reynslu, efla samráð og styðja við inngildingu og virka þátttöku fólks af erlendum uppruna.
Á fundinum kynnti Heiðar verkefnið Frá móttöku til inngildingar, sem Þekkingarnet Þingeyinga vinnur í samstarfi við SSNE. Verkefnið er til tveggja ára og miðar að því að styðja sveitarfélögin við að bæta móttöku, upplýsingagjöf og inngildingu nýrra íbúa.
Einnig voru kynntar niðurstöður rannsóknar sem unnin var af Þekkingarneti Þingeyinga meðal íbúa af erlendum uppruna. Þar kemur meðal annars fram mikilvægi góðrar upplýsingagjafar, íslenskukunnáttu og skýrra leiða til þátttöku í samfélaginu.
Fram undan er samtal við hvert sveitarfélag um stöðu og þarfir á hverjum stað, en fjölmenningarráðið verður mikilvægur vettvangur fyrir áframhaldandi samstarf og miðlun reynslu.