Fara í efni

Vefmiðlar á Norðurlandi eystra hvattir til samstarfs um sýnileika viðburða

Vefmiðlar á Norðurlandi eystra hvattir til samstarfs um sýnileika viðburða

SSNE leitar eftir samstarfi við vefmiðla á Norðurlandi eystra í tengslum við verkefnið Menningarbyggðin, sem hefur meðal annars það að markmiði að auka sýnileika menningar og viðburða á svæðinu.

Ein af hugmyndum verkefnisins er að fjölga þeim stöðum þar sem íbúar og gestir geta nálgast upplýsingar um viðburði á Norðurlandi eystra. Til stendur að gera vefmiðlum á svæðinu kleift að tengja viðburðadagatal Markaðsstofu Norðurlands við sína vefi og miðla þannig upplýsingum um viðburði til enn breiðari hóps.

Með þessu skapast tækifæri til að auka sýnileika viðburða, einfalda upplýsingamiðlun og gera viðburðahaldendum auðveldara að koma viðburðum sínum á framfæri.

Gert er ráð fyrir að hægt verði að veita eins skiptis styrk til vefmiðla sem taka þátt í verkefninu og tengja dagatalið við vefi sína.

Verkefnastjórar SSNE óska nú eftir að heyra frá vefmiðlum á Norðurlandi eystra sem hafa áhuga á að taka þátt í verkefninu og skoða möguleika á slíkri tengingu. Fulltrúar vefmiðla eru hvattir til að hafa samband fyrir 15. desember n.k..

Áhugasamir geta haft samband við SSNE í ssne@ssne.is eða við tengiliði menningarmála hjá SSNE, Díönu Jóhannsdóttur og Elvu Gunnlaugsdóttur.

Getum við bætt síðuna?