Fara í efni

„Tungumál og tækifæri til þátttöku eru lykilþættir í inngildingu“

Heiðar Hrafn Halldórsson
Heiðar Hrafn Halldórsson

„Tungumál og tækifæri til þátttöku eru lykilþættir í inngildingu“

Heiðar Hrafn Halldórsson hjá Þekkingarneti Þingeyinga kynnti niðurstöður nýrrar viðtalsrannsóknar meðal erlendra íbúa á Norðurlandi eystra á föstudagsfundi SSNE í dag. Rannsóknin ber heitið Í átt að inngildingu og byggir á viðtölum við 30 íbúa frá 18 löndum sem að meðaltali hafa búið á Íslandi í rúm tíu ár. Öll bjuggu þau innan starfssvæðis SSNE.
 
Meðal þess sem fram kom í kynningu Heiðars var mikilvægi íslenskukunnáttu fyrir félagslega þátttöku, aðgengi að þjónustu og tækifæri á vinnumarkaði. Alls höfðu 87% viðmælenda sótt íslenskunámskeið og var almenn ánægja með námið. Þrátt fyrir það voru tungumálahindranir algengasta ástæða þess að viðmælendur tóku ekki meiri þátt í félagsstarfi.
 
„Það er ekki skortur á vilja til þátttöku sem einkennir þennan hóp, heldur eru það oft tungumálahindranir og skortur á tækifærum sem standa fólki fyrir þrifum,“ segir Heiðar.
 
Menntun og mannauður nýtist ekki til fulls
Atvinnuþátttaka meðal viðmælenda var mikil og voru 83% þeirra í fullu starfi. Athygli vekur þó að 55% störfuðu annaðhvort ekki eða aðeins að hluta til í samræmi við menntun sína.
 
„Hér er mikill mannauður sem við erum ekki að nýta til fulls. Það eru tækifæri fyrir bæði atvinnulífið og samfélagið í heild,“ segir Heiðar.
 
Þá sögðust 72% þeirra sem svöruðu hafa upplifað mismunun í sínu sveitarfélagi, einkum á vinnumarkaði og í félagslegum samskiptum.
 
Vilji til aukinnar þátttöku í sveitarstjórnarmálum
 
Athyglisverðar niðurstöður komu einnig fram varðandi lýðræðislega þátttöku. Helmingur viðmælenda taldi að rödd þeirra væri ekki tekin til greina við ákvarðanir sem vörðuðu þá sérstaklega. Á sama tíma sögðust 53% tilbúin til eða mögulega opin fyrir því að íhuga framboð í sveitarstjórnarkosningum, ef tækifæri til þess byðist.
 
„Það er athyglisvert hversu mörg af viðmælendum voru opin fyrir þátttöku í sveitarstjórnarmálum á sama tíma og upplifun um að rödd innflytjenda vantaði í sveitarstjórnarmál var ríkjandi. Þetta gefur vísbendingu um að kynning á sveitastjórnarmálum þurfi ef til vill að byrja fyrr í aðdraganda kosninga og vera markvissari heildrænt séð,“ segir Heiðar.
Getum við bætt síðuna?