Farsældaráætlun Norðurlands eystra staðfest
Farsældaráætlun Norðurlands eystra staðfest
Áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna á Norðurlandi eystra 2027–2030 hefur nú verið staðfest. Staðfestingin markar mikilvægan áfanga í sameiginlegu starfi að farsæld barna og fjölskyldna á svæðinu.
Áætlunin skilgreinir hvaða aðgerðir hafa forgang á næstu árum og leggur grunn að samstarfi þeirra sem koma að málefnum barna á svæðinu. Markmiðið er að samstilla vinnuna og bæta aðstæður barna og fjölskyldna
Mótuð í samráði á svæðinu
Að baki áætluninni liggur vinna Farsældarráðs Norðurlands eystra og samráð við sveitarfélög og þjónustuveitendur. Við mótun hennar var meðal annars stuðst við vinnustofur farsældarráðs í maí, gögn úr Íslensku æskulýðsrannsókninni og umræður framkvæmdahóps.
Forvarnir og aðgengi að stuðningi
Forvarnir eru einn af lykilþáttum áætlunarinnar. Þar er lögð áhersla á auknar forvarnir gegn ofbeldi og áhættuhegðun barna, samræmda fræðslu og aukið samstarf þeirra sem sinna málefnum barna og ungmenna.
Aukið aðgengi að sálfélagslegri þjónustu er einnig meðal markmiða. Sú áhersla nær meðal annars til ungmenna á aldrinum 16–18 ára og snertir samstarf framhaldsskóla og Heilbrigðisstofnunar Norðurlands.
Sameiginlegur grunnur fyrir framhaldið
Með staðfestingu áætlunarinnar liggur nú fyrir sameiginlegur rammi um forgangsröðun aðgerða á árunum 2027–2030. Hann verður viðmið í áframhaldandi samstarfi sveitarfélaga, þjónustuveitenda og annarra sem koma að farsæld barna á Norðurlandi eystra.