„Norðurland er með þessu flugi betri kostur til búsetu og atvinnuuppbyggingar“
„Norðurland er með þessu flugi betri kostur til búsetu og atvinnuuppbyggingar“
Beint millilandaflug til Norðurlands styrkir ferðaþjónustu, bætir lífskjör íbúa og skapar grundvöll fyrir frekari atvinnuuppbyggingu. Þetta kom fram í máli Hjalta Páls Þórarinssonar, sem stýrir Flugklasanum Air 66N hjá Markaðsstofu Norðurlands, á Allsherjarfundi landshlutasamtaka, markaðsstofa landshlutanna og Byggðastofnunar í Borgarnesi í morgun. Hann kallaði eftir skýrri ákvörðun stjórnvalda um að opna nýja gátt inn í landið og fylgja henni eftir með fjárfestingu og langtímaáætlun.
„Þetta er frábært byggðaþróunarverkefni,“ sagði Hjalti um starf Flugklasans Air 66N. Klasinn er samstarfsverkefni fyrirtækja í ferðaþjónustu, sveitarfélaga, stofnana og annarra hagsmunaaðila. Hann hefur frá upphafi verið hýstur hjá Markaðsstofu Norðurlands og vinnur að því að koma á reglulegu millilandaflugi um Akureyrarflugvöll allt árið.
Ellefu þúsund gestir og yfir milljarður inn á svæðið
Hjalti fór yfir þann árangur sem þegar hefur náðst. Á síðasta ári var beint millilandaflug um Akureyrarflugvöll tíu mánuði ársins.
„Ef við tökum bara síðasta ár, þá vorum við með flug 10 mánuði ársins, en það vantar ennþá tvo mánuði til að loka árinu,“ sagði Hjalti.
Um 11 þúsund erlendir gestir komu inn á svæðið með þessu flugi og sagði Hjalti áætlað að þeir hefðu skilað yfir einum milljarði króna inn í hagkerfi svæðisins. Sú fjárhæð næði aðeins til útgjalda ferðafólks eftir komuna. Þjónusta sem þegar hefði verið keypt með bókunum í heimalandi væri ekki inni í þeirri tölu.
Hann lagði áherslu á að uppbygging ferðaþjónustunnar á Norðurlandi hefði gert svæðið betur í stakk búið til að taka á móti gestum yfir fleiri mánuði ársins. „Áfangastaðurinn hefur þróast mikið og við erum tilbúin í dag til að taka á móti þessum ferðamönnum.“
Ávinningurinn næði jafnframt langt út fyrir ferðaþjónustuna sjálfa. „Við erum að sjá mjög bætt lífskjör íbúa með aðgengi að þessu flugi. Norðurland er með þessu flugi betri kostur til búsetu og atvinnuuppbyggingar.“
Kallar eftir skýrri ákvörðun og langtímahugsun
Að sögn Hjalta fer stór hluti af tíma klasans í hagsmunagæslu. Þurft hafi að berjast fyrir fjármögnunar Flugþróunarsjóðs og uppbyggingar Akureyrarflugvallar. Ríkið hefur lagt fjármagn til verkefnisins frá árinu 2017 og sagði hann Flugþróunarsjóð hafa skapað grunn til að gera svæðinu kleift að keppa við aðra áfangastaði í norðanverðri Skandinavíu.
Þrátt fyrir árangurinn taldi Hjalti að enn skorti nægilega ákveðnar aðgerðir til að opna raunverulega nýja gátt inn í landið. Barátta hefði verið um fjármögnun Flugþróunarsjóðs allt frá stofnun hans. Hann kallaði eftir sameiginlegri sýn á alþjóðaflugvelli landsins og að uppbygging þeirra væri hugsuð sem ein heild.
Til að ná markmiðunum þyrfti að fjárfesta í innviðum, viðhaldi og markaðssetningu og horfa til lengri tíma. Slík uppbygging gerðist ekki á einni nóttu.
Hjalti lagði jafnframt áherslu á að fleiri sterkir áfangastaðir innan Íslands gætu aukið líkurnar á endurkomu ferðafólks. „Það er eina skynsamlega leiðin til að þróa áfram ferðaþjónustu,“ sagði hann.
Við þá þróun þyrftu hagsmunir samfélaganna að vera í fyrirrúmi samhliða þörfum gestanna.
„Uppbyggingin þarf að þjóna bæði gestum okkar og samfélaginu,“ segir Hjalti.

Hluti af fulltrúum SSNE á alsherjarfundinum í Borgarnesi í dag (Mynd: Örlygur Hnefill)