Fara í efni

Gulleggið opnar fyrir skráningar – kynningarviðburður á Akureyri

Gulleggið opnar fyrir skráningar – kynningarviðburður á Akureyri

Nú hefur verið opnað fyrir skráningar í Gulleggið, stærstu frumkvöðlakeppni Íslands, þar sem tvær milljónir króna eru í verðlaun. Af því tilefni verður efnt til opins kynningarviðburðar á Akureyri þar sem áhugasöm geta kynnt sér keppnina og tækifærin sem hún býður upp á.

Gulleggið gefur einstaklingum og teymum tækifæri til að þróa viðskiptahugmyndir, efla þekkingu sína og mynda tengsl innan nýsköpunarumhverfisins. Ekki þarf að vera komin með fullmótaða viðskiptahugmynd til að taka þátt og hægt er að skrá sig bæði með og án hugmyndar.

Í tilefni af opnun skráninga standa KLAK – Icelandic Startups, Drift EA, Háskólinn á Akureyri og Hraðið – miðstöð nýsköpunar fyrir opnum kynningarviðburði í Drift EA á Akureyri.

Þar gefst gestum tækifæri til að fræðast nánar um Gulleggið, heyra hvernig þátttakan fer fram og hitta fólk úr nýsköpunarumhverfinu. Léttar veitingar verða í boði og öll áhugasöm eru hjartanlega velkomin.

Hvar og hvenær?

  • Staður: Drift EA, Strandgata 1, Akureyri
  • Dagsetning: Fimmtudagurinn 19. nóvember
  • Tími: Kl. 17:00–19:00

Skráningar í Gulleggið og frekari upplýsingar um keppnina má finna á vef KLAK – Icelandic Startups.

Getum við bætt síðuna?