Fara í efni

Stjórn SSNE lýsir miklum vonbrigðum með niðurstöðu fundar með innviðaráðherra

Stjórn SSNE lýsir miklum vonbrigðum með niðurstöðu fundar með innviðaráðherra

Stjórn Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) lýsir miklum vonbrigðum með niðurstöðu fundar með Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra, starfsfólki ráðuneytisins og sveitarstjórum á Norðurlandi eystra sem haldinn var föstudaginn 13. nóvember síðastliðinn.

Stjórnin óskaði eftir fundinum til að ræða fyrirhugaðar breytingar á Loftbrúnni og leiðir til að styrkja úrræðið sem byggðatæki til að draga með sannarlegum hætti úr aðstöðumun vegna búsetu fjarri þjónustu.

Á fundinum gagnrýndu stjórn SSNE og sveitarstjórar á Norðurlandi eystra samráðsleysið við undirbúning breytinganna. Kynning á mótuðum breytingum kemur ekki í stað samráðs. Þegar Loftbrúin var mótuð var unnið í þéttu samráði við landshlutasamtök sveitarfélaganna, Byggðastofnun og þingmenn og sömu vinnubrögðum hefði átt að beita nú.

Á fundinum var lagt til að ráðherra hæfi þegar í stað samningaviðræður við flugrekendur um miðakaup á fyrirfram ákveðnu verði, óháð bókunarfyrirvara. Þóroddur Bjarnason prófessor hefur vakið máls á þeirri leið og bent hefur verið á fordæmi um slíka samninga bæði á Norður- og Austurlandi. Slíkir samningar gætu gert greiðslu farþegans sjálfs fyrirsjáanlegri með því að taka til miðaverðsins sjálfs, en ekki aðeins fastrar niðurgreiðslu á breytilegu fargjaldi. Þá var lagt til að ráðherra skipaði starfshóp til að greina þær ýmsu leiðir sem nefndar hafa verið til úrbóta á Loftbrúnni, til hagsbóta fyrir notendur hennar, ríkið og flugrekendur. Enn fremur var rætt um frestun á framkvæmd ákvörðunar ráðherra, að óbreytt fyrirkomulag yrði í gildi á árinu 2027 á meðan starfshópur kæmist að niðurstöðu um ákjósanlega leið sem samræmdist best hlutverki loftbrúarinnar sem jöfnunartækis og þörf ríkisins fyrir fyrirsjánleika í útgjöldum.

Þrátt fyrir boðaða hækkun framlags til loftbrúar á fjárlögum, miðað við upphafleg áform, mun stuðningurinn verða minnstur sem hlutfall af miðaverði hjá þeim íbúum landsbyggðanna sem greiða hæstu fargjöldin. Með breytingunum á kerfinu er því ýtt undir ójöfnuð. Það bitnar sérstaklega á fólki sem þarf að ferðast með skömmum fyrirvara. Stjórn SSNE leggur áherslu á að innanlandsflug sé almenningssamgöngur þeirra íbúa sem lengst búa frá höfuðborginni og að breytingin þrengi að aðgengi þeirra að þjónustu.

Í ljósi þess að þingmenn úr bæði meirihluta og minnihluta á Alþingi hafa lýst andstöðu við þessar einhliða breytingar á Loftbrúnni veldur afstaða ráðherra sérstökum vonbrigðum.

Breytingarnar sem innviðaráðherra hefur nú staðfest ganga gegn upphaflegum markmiðum Loftbrúar um að jafna búsetuskilyrði og bæta aðgengi íbúa landsbyggðarinnar að þjónustu. Stjórn SSNE ítrekar því áskorun sína til ráðherra um að innleiða ekki breytingu sem skerðir kjör eða aðgengi íbúa landsbyggðarinnar. Þess í stað verði ráðist í heildstæða skoðun á því hvernig Loftbrú geti best dregið úr búsetutengdum aðstöðumun og tryggt fyrirsjáanlegan ferðakostnað.

Getum við bætt síðuna?