Frá stjórn og starfsfólki SSNE vegna sjóslyss
Frá stjórn og starfsfólki SSNE vegna sjóslyss
Samfélagið í Norðurþingi og á Norðurlandi eystra hafa orðið fyrir miklu áfalli við það hörmulega sjóslys sem varð í gær.
Stjórn og starfsfólk SSNE vottar fjölskyldum og ástvinum þeirra þriggja skipverja Jökuls ÞH sem fórust sína dýpstu samúð. Hugur okkar er hjá þeim skipverjum sem björguðust, fjölskyldum þeirra og öllum þeim sem eiga um sárt að binda í dag.
Stjórn og starfsfólk SSNE færir starfsfólki Landhelgisgæslunnar, björgunarsveitum, áhöfnum fiskiskipa, heilbrigðisstarfsfólki, lögreglu og öðrum viðbragðsaðilum innilegar þakkir fyrir það þrekvirki sem unnið var við afar erfiðar aðstæður. Stjórn og starfsfólk SSNE þakkar öllum þeim sem komu að aðgerðum í gærkvöldi og nótt.