Fara í efni

69 gönguleiðir á Norðurlandi aðgengilegar á einum stað

69 gönguleiðir á Norðurlandi aðgengilegar á einum stað

Markaðsstofa Norðurlands hefur unnið að því að gera upplýsingar um gönguleiðir á Norðurlandi aðgengilegar á einum stað á ferðavefnum Upplifðu Norðurland. Á vefnum má nú finna upplýsingar um 69 fjölbreyttar gönguleiðir á Norðurlandi, allt frá léttum strand- og bæjargöngum til lengri og krefjandi fjallaleiða. Gönguleiðirnar eru meðal annars flokkaðar eftir erfiðleikastigi og áætluðum göngutíma, sem auðveldar fólki að finna leið við hæfi. 

Verkefnið stuðlar þannig að bættu aðgengi að upplýsingum um þá fjölbreyttu möguleika sem Norðurland býður upp á til útivistar. Á vefnum er jafnframt bent á þjónustuaðila og leiðsögumenn fyrir þau sem vilja njóta leiðsagnar eða fá aðstoð við skipulagningu gönguferða.

Sóknaráætlun Norðurlands eystra hefur stutt verkefnið síðastliðin tvö ár. Með stuðningi við verkefni af þessu tagi er unnið að því að auka sýnileika svæðisins og þeirra fjölbreyttu tækifæra sem þar eru til útivistar og upplifunar. Skoða gönguleiðir á Norðurlandi

Getum við bætt síðuna?