Fara í efni

Loftbrú þarf að tryggja viðráðanlegan og fyrirsjáanlegan ferðakostnað

Ljósmynd: Olga Ernst (Wikimedia Commons)
Ljósmynd: Olga Ernst (Wikimedia Commons)

Loftbrú þarf að tryggja viðráðanlegan og fyrirsjáanlegan ferðakostnað

Stjórn SSNE gagnrýnir boðaðar breytingar á Loftbrú og skort á efnislegu samráði við sveitarfélög og landshlutasamtök. Stjórnin vill nýta endurskoðunina til að styrkja Loftbrú sem byggðatæki og tryggja að breytingar skerði ekki kjör eða aðgengi íbúa landsbyggðarinnar að stjórnsýslu og stofnunum ríkisins.

Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra sendu í dag minnisblað og ályktun til Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra. Þar er óskað eftir fundi með ráðherra hið fyrsta og efnislegu samráði um framtíðarútfærslu Loftbrúar.

Loftbrú gegnir mikilvægu hlutverki í að draga úr búsetutengdum aðstöðumun og bæta aðgengi íbúa landsbyggðarinnar að miðlægri þjónustu. Stjórnin leggur áherslu á að ferðakostnaður sé viðráðanlegur og fyrirsjáanlegur, einnig þegar ferðast þarf með skömmum fyrirvara.

Hækkun niðurgreiðslu leysir ekki vandann ein og sér

Gagnrýni stjórnar beinist meðal annars að boðaðri breytingu úr hlutfallslegri niðurgreiðslu í fasta krónutölu. Með þeirri útfærslu fá þeir sem greiða hæstu fargjöldin hlutfallslega minnstan stuðning. Það getur einkum íþyngt íbúum sem þurfa að ferðast með skömmum fyrirvara vegna þjónustu, veikinda eða óvæntra aðstæðna.

Stjórnin fagnar vilja ráðherra til að endurmeta fjárhæð niðurgreiðslunnar en telur hækkun eina og sér ekki leysa þann vanda. Skoða þurfi heildstætt hvernig úrræðið geti tryggt íbúum viðráðanlegan ferðakostnað og dregið úr óvissu um eigin útgjöld.

Kynning kemur ekki í stað samráðs

Stjórn SSNE gagnrýnir jafnframt að breytingarnar hafi verið boðaðar án undangengins efnislegs samráðs við sveitarfélög og landshlutasamtök þeirra svæða sem Loftbrú þjónar.

„Kynning á mótuðum breytingum kemur ekki í stað samráðs,“ segir í ályktun stjórnar.

Sveitarfélög, landshlutasamtök og fulltrúar notenda þurfi að fá raunverulegt tækifæri til að móta valkosti áður en ákvörðun er tekin. Þannig verði tryggt að staðbundin þekking og reynsla hafi vægi við mótun úrræðisins.

Skoði samninga um miðakaup á fyrirfram ákveðnu verði

Stjórnin leggur til að við endurskoðun Loftbrúar verði meðal annars kannað hvort ríkið geti samið við flugrekendur um miðakaup á fyrirfram ákveðnu verði, óháð bókunarfyrirvara, líkt og Þóroddur Bjarnason prófessor hefur bent á.

Slíkir samningar gætu gert eigin greiðslu farþegans fyrirsjáanlegri, þar sem þeir tækju til miðaverðsins sjálfs en ekki aðeins fastrar niðurgreiðslu á breytilegu fargjaldi.

Markmið endurskoðunarinnar verði að styrkja Loftbrú sem byggðatæki og draga með sannanlegum hætti úr aðstöðumun vegna búsetu fjarri miðlægri þjónustu. Stjórn SSNE leggur áherslu á að ekki verði innleidd breyting sem skerðir kjör eða aðgengi íbúa landsbyggðarinnar.

Hægt er að lesa minnisblað og ályktun stjórnar hér.

Getum við bætt síðuna?