Fara í efni

Frábær vinnustofa Startup Landsins í Borgarnesi

Frábær vinnustofa Startup Landsins í Borgarnesi

Í byrjun október hittust þátttakendur, ráðgjafar og samstarfsaðilar Startup Landsins í Borgarnesi á tveggja daga vinnustofu þar sem lögð var áhersla á tengslamyndun, skapandi hugsun og áframhaldandi þróun verkefna þátttakenda.

Það er ómetanlegt að fá tækifæri til að hittast í raunheimum, kynnast betur og rækta tengslin sem hafa myndast í gegnum hraðalinn. Stemningin var einstaklega góð. Vinnustofan hófst með heimsókn á veitingastaðinn Þúfu þar sem þátttakendur fengu innsýn í fjölbreytta starfsemi fyrirtækisins. Þar var meðal annars sagt frá áherslu á staðbundið hráefni, námskeiðahaldi, klettaklifri og öðrum verkefnum sem hafa notið stuðnings úr Uppbyggingarsjóði.

Á Hótel Vesturlandi tók Sigríður Ásta við keflinu og leiddi öflugt hópefli þar sem þátttakendur voru hvattir til að fara út fyrir kassann, hugsa á nýjan hátt og styrkja samstarfið innan hópsins. Einnig var unnið með mikilvæga þætti í uppbyggingu fyrirtækja, þar á meðal Business Model Canvas, one-liner og lyfturæður.

Síðar um daginn heimsótti hópurinn Reyka Vodka þar sem Þórður Sigurðsson tók á móti gestum og sagði frá vegferð fyrirtækisins. Eyrún Eyþórsdóttir, stofnandi Mundialis og fyrrum þátttakandi í Startup Landinu, sagði frá sinni vegferð og uppbyggingu fyrirtækisins. Heimsóknin vakti mikinn áhuga og gaf þátttakendum dýrmæta innsýn í hvernig hugmynd getur þróast úr frumkvöðlaverkefni yfir í metnaðarfullt fyrirtæki með alþjóðlegar tengingar.

Á föstudeginum var síðan haldið áfram með samhristing, vinnu við Business Model Canvas, umræður og mentorakynningar. Þar fengu þátttakendur að hitta fjóra reynslumikla mentora; Magnús Inga Óskarsson frá KLAK, Ragnheiði Magnúsdóttur, frumkvöðul og stjórnarformann Nordic Ignite, Hrönn Greipsdóttur, framkvæmdastjóra Kríu, og Ólaf Sveinsson hagverkfræðing og ráðgjafa.

Í gegnum hraðstefnumót og samtöl fengu teymin verðmæta endurgjöf, ný sjónarhorn og hagnýt ráð frá fólki sem hefur víðtæka reynslu af nýsköpun, fjárfestingum og fyrirtækjauppbyggingu. Slík samtöl eru meðal þess sem gerir Startup Landið að öflugum vettvangi fyrir frumkvöðla sem vilja þróa hugmyndir sínar áfram. Við þökkum þessu öflugu og flottu mentorum fyrir sitt framlag og samveruna á Borgarnesi.

Örlygur Hnefill var með hópnum alla vinnustofuna og festi stemninguna á myndir og myndbönd sem gefa skemmtilega innsýn í þessa vel heppnuðu daga sem við deilum með ykkur á næstu vikum.

Við þökkum öllum þátttakendum, fyrirlesurum, mentorum og samstarfsaðilum kærlega fyrir frábæra daga í Borgarnesi. Nú tekur við spennandi framhald þar sem teymin halda áfram að þróa verkefni sín.

Getum við bætt síðuna?