SSNE leggur áherslu á öfluga nærþjónustu og staðbundið ákvörðunarvald við sameiningu lögregluembætta
SSNE leggur áherslu á öfluga nærþjónustu og staðbundið ákvörðunarvald við sameiningu lögregluembætta
Fyrirhuguð sameining lögregluembætta hefur verið til umfjöllunar að undanförnu. Af því tilefni vill stjórn SSNE árétta helstu sjónarmið sín um málið og þau atriði sem samtökin telja mikilvægt að horft verði til við frekari útfærslu breytinganna.
Stjórnin tekur undir þau meginmarkmið að efla faglega getu lögreglu, auka sérhæfingu og bæta samnýtingu mannafla og þekkingar, en leggur um leið ríka áherslu á að útfærslan megi ekki leiða til fjarlægari stjórnsýslu, veikari nærþjónustu eða þess að ákvörðunarvald og stjórnunarstörf færist frá landsbyggðunum.
Í umsögn SSNE er sérstaklega kallað eftir því að staðbundið ákvörðunarvald og stjórnunarleg nærvera verði tryggð með skýrum og bindandi hætti. Mikilvægt er að stærri stjórnsýslueiningar leiði ekki til þess að tengsl við einstök svæði veikist eða viðbragðsgeta minnki.
Mönnun og viðbragðsgeta taki mið af aðstæðum á hverju svæði
Stærra lögregluumdæmi, sem nær yfir Norðurland, Vestfirði og Vesturland, kallar að mati stjórnarinnar á næga mönnun og viðbragðsgetu allan sólarhringinn.
Ekki megi byggja þjónustu víðfeðmra svæða á því að aðeins einn lögreglumaður sé að jafnaði á vakt og sérstaklega þurfi að horfa til aðstæðna á stöðum á borð við Þórshöfn.
Íbúafjöldi og skráður málafjöldi segi heldur ekki alla söguna þegar metin er þörf fyrir löggæslu, enda þurfi einnig að taka mið af vegalengdum, samgöngum, ferðamönnum og árstíðabundnum álagssveiflum. Markmiðið hlýtur að vera að íbúar geti treyst á fullnægjandi þjónustu og viðbragðsgetu óháð búsetu.
Kallað eftir ítarlegra mati á áhrifum á landsbyggðina
Stjórn SSNE gerir jafnframt verulegar athugasemdir við að áhrif breytinganna á landsbyggðina séu í frumvarpinu metin óveruleg. Áður en nýtt skipulag tekur gildi telur stjórnin að liggja þurfi fyrir ítarlegra landsvæðisbundið áhrifamat þar sem meðal annars verði horft til nærþjónustu, viðbragðsgetu, starfa, almannavarna og samstarfs við sveitarfélög.
Sérstaklega þarf að skýra hvernig staðbundinni stjórn almannavarna verður háttað í svo víðfeðmu umdæmi og hvaða valdheimildir staðbundnir stjórnendur hafa þegar vá steðjar að. Sameiningin má ekki skapa lengri boðleiðir eða óvissu um ábyrgð þegar skjót viðbrögð skipta mestu máli.
Tækifæri til að styrkja starfsemi utan höfuðborgarsvæðisins
SSNE telur um leið að breytingarnar geti skapað tækifæri til að byggja upp sérhæfð störf og verkefni utan höfuðborgarsvæðisins, en það þurfi að tryggja með raunverulegri verkefna- og starfadreifingu. Stjórnin telur að Akureyri eigi að koma sterklega til álita við ákvörðun um staðsetningu aðalstöðva hins nýja embættis vegna stöðu bæjarins sem svæðisborgar, þjónustu- og samgöngumiðstöðvar og lykilstaðar fyrir viðbragðsgetu á Norðurlandi.
Mælikvarðinn á árangur breytinganna á að mati stjórnar SSNE fyrst og fremst að vera hvort þær skili betri þjónustu, öflugri viðbragðsgetu og auknu öryggi íbúa óháð búsetu.
Heimir Örn Árnason, formaður SSNE, fór nýverið yfir afstöðu samtakanna í viðtali við RÚV og gerði þar nánari grein fyrir þeim sjónarmiðum sem fram koma í umsögn stjórnar.