Ferðaþjónustan fagnaði uppskeru ársins á Norðurhjarasvæðinu
Ferðaþjónustan fagnaði uppskeru ársins á Norðurhjarasvæðinu
Frumkvöðlastarf, metnaðarfull uppbygging og tækifæri til framtíðar voru í brennidepli þegar Markaðsstofa Norðurlands hélt árlega uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar fimmtudaginn 15. október. Að þessu sinni fór hátíðin fram í Norðurþingi þar sem ferðaþjónustufólk víðs vegar að af Norðurlandi kynntist fjölbreyttri starfsemi og uppbyggingu í Kelduhverfi, á Kópaskeri og Raufarhöfn.
Dagurinn hófst í Hótel Skúlagarði í Kelduhverfi þar sem hjónin Egill Bjarnason og Sigrún Björg Aðalgeirsdóttir tóku á móti gestum og sögðu frá umfangsmiklum endurbótum á þessu sögufræga húsi, sem áður hýsti heimavistarskóla og félagsheimili sveitarinnar.
Hjónin hafa unnið að því að efla starf í Skúlagarði með viðburðahaldi, veitingum úr staðbundnu hráefni og tengingu við náttúru svæðisins. Meðal nýjunga er veitingastaðurinn Grös og gróðurhús þar sem ræktað er grænmeti fyrir starfsemina.
Frumkvöðlakraftur á norðausturhorni landsins
Frá Skúlagarði lá leiðin á Kópasker þar sem þátttakendur kynntust gistimöguleikum, þjónustu og þeirri starfsemi sem byggst hefur upp í kringum ferðaþjónustu í bænum. Því næst var haldið til Raufarhafnar, þar sem fjölbreytt ferðaþjónustustarfsemi var kynnt.
Meðal viðkomustaða voru Tankarnir, þar sem gestum var boðið upp á dýrindis fiskisúpu og fjöldasöng. Einnig voru fyrirtæki í ferðaþjónustu heimsótt.
„Árangurinn verður ekki til af sjálfu sér“
Helena Eydís Ingólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar Norðurþings og varaformaður SSNE, ávarpaði gesti við upphaf dagskrárinnar og fagnaði þeim árangri sem náðst hefur í ferðaþjónustu á Norðurlandi.
„Ferðaþjónustan á Norðurlandi stendur á nokkuð sterkum grunni og árangurinn sem við sjáum í dag er afrakstur hugrekkis, frumkvæðis, metnaðar og samvinnu þeirra fjölmörgu einstaklinga sem starfa í greininni,“ sagði Helena.
Hún lagði áherslu á mikilvægi samstarfs sveitarfélaga og atvinnulífs og nefndi Demantshringinn sem gott dæmi um hvernig sameiginleg markaðssetning geti aukið sýnileika heils svæðis.
Þá horfði hún sérstaklega til þeirra tækifæra sem felast í áframhaldandi uppbyggingu Heimskautsgerðisins á Raufarhöfn, tengingunni við Vatnajökulsþjóðgarð og möguleikum til að efla kvikmyndatengda ferðaþjónustu á Norðurlandi.
Kallar eftir fyrirsjáanleika í skattlagningu og gjaldtöku
Í ávarpi sínu vék Helena einnig að þeim áskorunum sem ferðaþjónustan stendur frammi fyrir, meðal annars vegna aukinnar skattlagningar og gjaldtöku.
Hún nefndi sérstaklega fyrirhugaðar breytingar á virðisaukaskatti af baðþjónustu, aukna gjaldtöku af skemmtiferðaskipum og óvissu um áframhaldandi framlög til flugþróunarsjóðs.
Helena undirstrikaði að fyrirtæki þyrftu svigrúm til langtímaáætlanagerðar og að breytingar á sköttum og gjöldum yrðu að taka mið af áhrifum þeirra á atvinnusköpun, samkeppnishæfni og byggðaþróun.
Hún sagði kjörna fulltrúa í Norðurþingi hafa talað fyrir hóflegri gjaldtöku og meiri fyrirvara þegar breytingar væru gerðar á rekstrarumhverfi fyrirtækja.
Jafnframt minnti hún á að fjármögnun flugþróunarsjóðs væri enn ótrygg, þar sem framlag þessa árs væri ekki að finna í fjárlagafrumvarpi næsta árs.
Samstarf lykillinn að áframhaldandi sókn
Uppskeruhátíðin undirstrikaði mikilvægi þess að ferðaþjónustuaðilar af öllu Norðurlandi hittist, miðli reynslu og efli tengsl sín á milli. Slíkt samstarf er ekki síst mikilvægt fyrir minni samfélög þar sem ferðaþjónusta getur verið öflugur drifkraftur atvinnuuppbyggingar og fjölbreyttara atvinnulífs.
Í lok ávarps síns hvatti Helena til áframhaldandi samstöðu ferðaþjónustunnar og kjörinna fulltrúa um framtíð greinarinnar.
„Við þurfum áfram að standa saman, fulltrúar ferðaþjónustunnar og kjörnir fulltrúar sveitarfélaganna, tala fyrir mikilvægi greinarinnar og tryggja að uppbygging hennar verði sjálfbær, bæði fyrir fólkið sem býr í samfélögunum hér og fyrirtækin sem skapa verðmæti á hverjum degi.“
Uppskeruhátíðinni lauk með hátíðarkvöldverði og skemmtun á Raufarhöfn.