„Orkuskipti þurfa að taka mið af þeim miklum vegalengdum sem við búum við“
„Orkuskipti þurfa að taka mið af þeim miklum vegalengdum sem við búum við“
Íbúar á Norðurlandi eystra þekkja vel mikilvægi þess að geta treyst á samgöngur. Starfssvæði SSNE einkennist af löngum vegalengdum. Koma þarf börnum í skóla, afurðum á markað og sækja ýmsa þjónustu um langan veg. Orkuskipti þurfa að ganga upp við þessar aðstæður og gera samfélögunum okkar kleift að blómstra um leið og við drögum úr losun og notkun jarðefnaeldsneytis. Til þess þurfa sveitarfélögin þekkingu, verkfæri og svigrúm til að láta góð áform verða að veruleika.
Þetta var viðfangsefni RECET, þriggja ára Evrópuverkefnis sem nú er nýlega lokið. Verkefnið tengdi saman samstarfsaðila frá fimm löndum til að finna leiðir sem henta sveitarfélögum í dreifðum byggðum og styrkja þau til orkuskipta og loftslagsaðgerða.
RECET stendur fyrir Rural Europe for the Clean Energy Transition, eða dreifbýli Evrópu í átt að hreinni orku. Verkefnið var samstarf aðila frá fimm löndum til að styrkja sveitarfélög í dreifðum byggðum til orkuskipta og loftslagsaðgerða, og hlaut það 1,5 milljónir evra í styrk úr LIFE-áætlun Evrópusambandsins.
Á Norðurlandi eystra unnu SSNE og Eimur með sveitarfélögum að stefnumótun, þekkingaröflun og þróun hagnýtra verkfæra. „Helsti ávinningurinn er að sveitarfélögin hafa nú sameiginlegan grunn til að vinna út frá. Við höfum tengt saman þekkingu, gögn og aðgerðir sem nýtast áfram þótt verkefninu sjálfu sé lokið,“ segir Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, verkefnastjóri umhverfismála hjá SSNE.
„Orkuskipti þurfa að taka mið af þeim miklum vegalengdum sem við búum við á starfssvæði SSNE. Stjórnvöld verða að tryggja að innviðir og hvatar til orkuskipta nái til dreifðra byggða og að raunhæfir valkostir séu til staðar þegar kröfur eru hertar og álögur auknar, ekki síst þegar kemur að stærri atvinnubílum og flutningum. Viljinn til breytinga er fyrir hendi, en tækifærin til að taka þátt þurfa líka að vera það,“ segir Albertína Friðbjörg Elíasdóttir framkvæmdastjóri SSNE.
Albertína segir RECET hafa lagt mikilvægan grunn að áframhaldandi vinnu að orkuskiptum á Norðurlandi eystra, með aukinni þekkingu, samstarfi og getu sveitarfélaga til að vinna markvisst að orkuskiptum.
Meðal helstu afurða verkefnisins er LOFORÐ, loftslagsstefna Norðurlands eystra og aðgerðaáætlun, sem samþykkt var á ársþingi SSNE vorið 2026. Hún var unnin í samráði við öll tíu sveitarfélögin innan samtakanna og felur í sér sameiginleg markmið og aðgerðir fyrir landshlutann.
„Með loftslagsstefnunni höfum við komið okkur saman um hvert við viljum stefna og hvaða skref við ætlum að taka. Samstarfið gerir okkur kleift að deila reynslu og vinna saman að verkefnum sem getur verið erfitt fyrir hvert sveitarfélag að sinna eitt og sér,“ segir Sigurborg.
Önnur mikilvæg afurð er aðgerðabanki með 49 loftslags- og orkuaðgerðum, unninn af Eimi, SSNE og Vestfjarðastofu í kjölfar vinnustofa með sveitarfélögum. Þar eru meðal annars tillögur um orkuskipti, orkunýtni, breyttar ferðavenjur og rekstur sveitarfélaga, ásamt leiðbeiningum um framkvæmd. „Aðgerðabankinn auðveldar sveitarfélögum að fara frá markmiðum yfir í framkvæmd. Þau geta valið aðgerðir sem henta þeirra aðstæðum og aðlagað þær að eigin rekstri, í stað þess að þurfa að byrja frá grunni,“ segir Sigurborg.
RECET hefur einnig stutt innleiðingu rafræns losunarbókhalds fyrir sveitarfélögin tíu og skilað olíumælaborði, greiningu á orkuskiptum í haftengdri starfsemi og fjölbreyttri fræðslu. Vinnustofur, málþing og alþjóðlegar heimsóknir hafa jafnframt eflt þekkingu og samstarf um lausnir sem henta dreifðum byggðum. „Með losunarbókhaldinu getum við betur séð hvar losunin verður til, forgangsraðað aðgerðum og fylgst með árangrinum. Næsta verkefni er að nýta þessi verkfæri í daglegu starfi sveitarfélaganna og tryggja að áætlanirnar skili raunverulegum breytingum,“ segir Sigurborg.
Hægt er að kynna sér ýmsar afurði RECET á starfssvæði SSNE hér að neðan:
- LOFORÐ – Loftslagsstefna Norðurlands eystra og aðgerðaáætlun
- Aðgerðabanki fyrir sveitarfélög í loftslagsmálum, orkuskiptum og orkunýtni
- Olíumælaborð – yfirlit yfir olíusölu eftir sveitarfélögum
- Rafrænt losunarbókhald sveitarfélaga innan SSNE
- Orkuskipti í haftengdri starfsemi á Norðurlandi eystra – skýrsla
- Vefþing um orkuskipti smábáta í sjávarútvegi
- Vinnustofur með sveitarfélögum um staðbundin orkuskipti
- Málþing um orkuskipti og sveitarfélög
- Málstofa á Akureyri um stöðu orkuskipta á Norðurlandi
- Ráðstefna á Akureyri um sjálfbærar orkulausnir í dreifðum byggðum
- Rafræn vinnustofa með Sambandi íslenskra sveitarfélaga um gerð loftslagsstefnu
- Lokaviðburður Nordregio, RECET og LIFE
- Vinnustofa um heildstæð orkuskipti á Samsø
- Fræðslu- og kynningarferð til Menorca
- Vinnustofur og verkefnafundur í Postojna í Slóveníu
- Lessons from RECET – lokaskýrsla verkefnisins
- Fréttabréf RECET – þrjú tölublöð um verkefnið og árangur þess