Fara í efni

Málþing um orkuskipti og sveitarfélög

Málþing um orkuskipti og sveitarfélög

Íslensk nýorka, Eimur, Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra og Vestfjarðastofa standa fyrir sameiginlegum viðburði þann 29. ágúst n.k. kl. 13:00.
Viðburðurinn verður í beinu streymi frá Hótel KEA á Akureyri og ber yfirskriftina: Orkuskipti og sveitarfélög. Viðburðurinn markar upphafið að þriggja ára verkefni sem miðar að því að efla getu sveitarfélaga og samfélaga í dreifðum byggðum Evrópu, til að takast á við orkuskipti.
Áhugasamir geta skráð sig á viðburðinn og valið um að mæta í eigin persónu eða sitja fundinn í streymi (Teams).
 
Dagskrá:
Hilmar Gunnlaugsson, Sókn Lögmannsstofa
- Tekjumöguleikar sveitarfélaga af orkumannvirkjum
Alexis Chatzimpiros, Samsø Energiakademi
- Reynsla af uppbyggingu vindorku og öðrum orkugjöfum á Samsö
Anna Margrét Kornelíusdóttir, Íslensk Nýorka
- Rural Europe for the Clean Energy Transition (RECET verkefnið) - Styrkt af LIFE-áætlun ESB
Fundarstjóri er Ottó Elíasson, rannsókna- og þróunarstjóri hjá Eimi
Boðið verður upp á hressingu eftir fundinn.
 
Öll velkomin!
Getum við bætt síðuna?