Fræðslu- og kynningarferð RECET til Menorca
Fræðslu- og kynningarferð RECET til Menorca
Fyrr í vor hittist verkefnahópur RECET á eyjunni Menorca undan ströndum Spánar. Frá Íslandi fór starfsfólk frá EIM, SSNE og Vestfjarðarstofu. En auk þess sóttu fundinn fulltrúar frá Svíþjóð, Danmörku, Slóveníu auk gestgjafanna sem starfa fyrir CIME (Counsell Insular de Menorca) á Baleareyjaklasanum. Þar deildu þátttakendur reynslu sinni og lærdómi og greindu einnig frá framgangi verkefnisins í sínu heimalandi.
Þátttakendur eru nú langt komnir með að ná markmiðum verkefnisins, sem snýr með einum eða öðrum hætti að styðja við gerð svæðisbundinna áætlana um loftslagsmál og orkuskipti á sínum heimasvæðum. Sem dæmi þá leiddu SSNE gerð slíkrar áætlunar fyrir Norðurland eystra er nefnist LOFORÐ - Loftslagsstefna Norðurlands eystra, sjá frétt https://www.ssne.is/is/um-ssne/frettir/loftslagsstefna-ne-1. Unnið er nú að lokaskrefum RECET verkefnisins ásamt lokaskýrslu sem áætlað er að komi út í haust.
Opin málstofa um orkuskipti og breyttar ferðavenjur
CIME nýtti tækifærið og hélt opna málstofu um tækifæri í orkuskiptum og orkuöflun. Verkefnastjóri SSNE, Sigurborg Ósk Haraldsdóttir var með fyrirlestur um mótun heildstæðs kerfis fyrir vistvænar samgöngur (sjá glærur Mobility Plan), kynningar voru um þau verkefni sem nú eru í gangi við uppbyggingu sólarorkuvera á Menorca og innleiðingu sólarsella á íbúðarhúsum á eyjaklasanum ásamt því að Jón Björn hjá Íslenskri Nýorku var með kynningu um möguleika vetnis í orkuskiptum og Sigurborg var með kynningu um reynslu Íslands af orkuskiptum rafbíla. Í lokin leiddu fulltrúar RECET verkefnisins vinnustofu um orkusamfélög og gerð og innleiðingu loftslags og orkuskiptaáætlana. Málstofan og vinnustofan voru ágætlega sótt af heimafólki.
Orkukerfi Menorca
Hópurinn nýtti líka tækifærið og kynnti sér orkukerfi Menorca. Á eyjunni búa um 100.000 manns og er mikil ferðamannaeyja. Árlega tala eyjaskeggjar á móti 1,7 milljón ferðamanna sem byrja að streyma til eyjunnar um páska ár hvert, og stendur ferðamannatíminn einvörðungu frá apríl til ágústs. Þessar miklu sveiflur hafa mikil áhrif á eftirspurn eftir orku á eyjunni. Á Menorca er olíuorkuver sem framleiðir stærstan hluta þeirrar raforku sem þörf ef fyrir á eyjunni. Undanfarin ár hefur hinsvegar mikið átak verið gert í því að auka hlutdeild sólarorku og eru nokkur sólarorkuver á eyjunni, með uppsett afl í tugum megavatta. RECET hópurinn heimsótti eitt slíkt sólarorkuver sem er á náttúruverndarsvæði og var byggt upp með afturkræfum hætti. Sólarorkuverið getur á góðum degi framleitt um 50 MW af raforku, en vegna áskorana með jöfnun framleiðslunnar í raforkukerfi eyjarinnar er sú framleiðslugeta ekki alltaf fullnýtt og þarf þá að grípa til framleiðsluskerðinga. Til að mæta þessu er unnið að því að koma upp batterígeymslum fyrir raforku ásamt því að efla tenginguna um sæstreng við Majorca sem er næsta nálæga eyja.


Samstarfsfólki okkar á Menorca er þakkað fyrir fræðandi ferð og höfðinglegar móttökur.