Fara í efni

Vefstofa um hlutverk sveitarfélaga í orkuskiptum og grænum umskiptum

Vefstofa um hlutverk sveitarfélaga í orkuskiptum og grænum umskiptum

Dreifbýl svæði gegna lykilhlutverki í að ná evrópskum og landsbundnum markmiðum um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2030 og kolefnishlutleysi árið 2050. Þau eru einnig í forgrunni þegar kemur að því að draga úr háði Evrópu á jarðefnaeldsneyti, þar sem stærstur hluti endurnýjanlegrar orku er framleiddur í dreifbýli. Í mörgum smærri samfélögum eru sveitarfélög mikilvægir drifkraftar breytinga. Á sama tíma standa þau oft frammi fyrir áskorunum sem tengjast takmörkuðu starfsfólki, sérþekkingu og framkvæmdagetu.

Hvernig getum við unnið markvisst með sveitarfélögum til að hraða umskiptunum?

Taktu þátt í vefstofunni og ræddu þessi málefni við sérfræðinga sem koma að RECET-verkefninu, sem nýtur styrks úr LIFE-áætlun Evrópusambandsins. Skráning er öllum opin og án endurgjalds, en nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram.

👉 Skráning á vefstofuna er hér

Stór hluti þeirrar innviðaþróunar sem þarf til að styðja við hreina orku og orkuskipti, þar á meðal vindorku, sólarorku, líforku og tengd orkukerfi, mun eiga sér stað í dreifbýli. Þetta setur sveitarfélög og landshlutastjórnvöld í lykilstöðu þegar kemur að ákvörðunum um landnotkun, skipulagsmál, leyfisveitingar og staðbundna þróun.

Í samanburði við stærri þéttbýlissveitarfélög búa sveitarfélög í dreifbýli oft yfir færra starfsfólki, minni aðgangi að sérfræðiþekkingu og takmarkaðri stjórnsýslugetu til að færa áætlanir hratt yfir í framkvæmd. Þetta getur gert þeim erfiðara fyrir að bregðast við kröfum sem koma að ofan, meta ólíka hagsmuni og tryggja að heimafólk taki þátt í ákvörðunum sem hafa áhrif á samfélagið.

Þessi vefstofa markar lok RECET-verkefnisins, sem vinnur að því að draga úr háði á jarðefnaeldsneyti og hraða hreinni orkuskiptum í fimm evrópskum landsvæðum og sveitarfélögum þeirra. Á vefstofunni verður fjallað um hlutverk sveitarfélaga í grænum umskiptum og hvernig RECET-verkefninu hefur tekist að styðja við sveitarfélög og svæðisyfirvöld á Íslandi, Svíþjóð, Spáni og Slóveníu við skipulagningu orkuskipta og loftslagsaðgerða.

Samstarfsaðilar RECET, sérfræðingar og reynslumiklir framkvæmdaraðilar munu ræða leiðir til þátttöku og samráðs, stefnumótun sem byggir á aðgerðum og mikilvægi trausts og einfaldleika sem lykilþátta í árangursríku umbreytingarstarfi.

Fyrir hverja er vefstofan?

Vefstofan er sérstaklega ætluð:

  • Stefnumótendum á sveitarstjórnar- og svæðisstigi
  • Skipulagsfulltrúum sveitarfélaga
  • Starfsfólki sem vinnur að orku- og loftslagsmálum
  • Aðilum á sviði byggðaþróunar
  • Fræðafólki
  • Hagsmunaaðilum sem starfa á sviði endurnýjanlegrar orku, landnotkunar, svæðisþróunar og grænna umskipta

Dagskrá

13:00 – Setningarávarp
Annika Östman, samskiptastjóri Nordregio

13:05 – Stuðningur við sveitarfélög í dreifbýli við loftslags- og orkuáætlanagerð
Ottó Elíasson, framkvæmdastjóri Eims

13:20 – Frá áætlun til framkvæmdar
Marika Rošā, verkefnastjóri hjá EKODOMA

13:35 – Nýtið rammann og byggið ykkar eigin lausnir: Þrjár stuttar sögur úr RECET-verkefninu

  • Hjörleifur Finnsson, Vestfjarðastofu
  • Anna Månsson, Energikontor Syd AB
  • Eduard Escolá, Consell Insular de Menorca

13:50 – Pallborðsumræður

Hvernig breyta sveitarfélög breyttum áherslum Evrópusambandsins í staðbundnar aðgerðir?

Hagnýt umfjöllun um hvernig loftslagsmarkmið Evrópusambandsins og styrkir úr LIFE-áætluninni verða að raunverulegum verkefnum sem smærri sveitarfélög geta hrint í framkvæmd.

Á sama tíma og áherslur Evrópusambandsins færast í auknum mæli í átt að seiglu og aðlögunarhæfni, standa sveitarfélög frammi fyrir því verkefni að færa þessar áherslur yfir í aðgerðir og skila árangri á vettvangi. Í pallborðinu verður fjallað um hvernig seigla og sveigjanleiki eru byggð upp í framkvæmd og hvað þarf til að samræma stefnumótun að ofan við raunveruleikann á staðnum.

Þátttakendur í pallborði:

  • Carina Sammeli, bæjarstjóri Luleå
  • Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, verkefnastjóri hjá SSNE
  • Morten M. Westergaard, framkvæmdastjóri Samsø Energy Academy
  • Hans Rhein, framkvæmdarstjóri LIFE áætlunarinnar hjá ESB

14:25 – Lokaorð

Lokaumhugsun: Ottó Elíasson, framkvæmdastjóri Eims
Lokaorð: Annika Östman, samskiptastjóri Nordregio

Skráningarsíða Nordregio - Supporting local authorities in Europe's green transistion

Getum við bætt síðuna?