Rödd Norðurlands eystra inn í stóru málin
Rödd Norðurlands eystra inn í stóru málin
Haustið hefur verið annasamt í hagsmunagæsluverkefnum SSNE. Frá því ný stjórn samtakanna tók til starfa í sumar hefur hún skilað umsögnum um fjölbreytt mál sem snerta sveitarfélög, íbúa og atvinnulíf á Norðurlandi eystra. Þótt málin séu ólík er meginboðskapurinn sá sami: Ákvarðanir ríkisins þurfa að taka mið af staðbundnum aðstæðum og þekkingu, aðgengi að þjónustu og skilyrðum til atvinnuuppbyggingar. Þannig leitast stjórnin við að koma rödd Norðurlands eystra að stóru málunum strax við stefnumótun og lagasetningu.
Í umsögn um fjárlagafrumvarp ársins 2027 sagði stjórn SSNE meginniðurstöðuna vera að frumvarpið, óbreytt, feli í sér „byggðahalla“. Stjórnin benti á að samanlögð áhrif aðhalds, tekjuöflunar, breytinga á þjónustu og forgangsröðunar fjárfestinga geti lagst þyngra á dreifðar byggðir, þar sem vegalengdir séu lengri og valkostir færri. Jafnframt undirstrikaði stjórnin mikilvægi Sóknaráætlana landshluta sem verkfæris til að mæta ólíkum þörfum svæða og styðja við staðbundna þróun og verðmætasköpun. Stjórnin hvatti fjárlaganefnd Alþingis sérstaklega til að beita byggðalinsu innviðaráðuneytisins við lokaafgreiðslu frumvarpsins.
Sömu sjónarmið birtust í umsögn SSNE um ný sveitarstjórnarlög. Þar var tekið jákvætt í markmið um skýrari og samræmdari lagaumgjörð, en jafnframt lögð áhersla á að breytingar vegna samstarfs sveitarfélaga auki hvorki kostnað né stjórnsýslubyrði. Stjórn SSNE lagði þar sérstaka áherslu á skýra og sterka stöðu landshlutasamtaka sem samstarfs-, þróunar- og hagsmunavettvangs sveitarfélaga, án þess að þau verði sérstakt stjórnsýslustig.
Í umsögn um breytingar á ýmsum reglugerðum vegna einföldunar eftirlits studdi stjórn SSNE markmið um einfaldara og skilvirkara eftirlitskerfi, en lagði áherslu á skýra verkaskiptingu sveitarfélaga og Umhverfis- og orkustofnunar. Tryggja þurfi sveitarfélögum fullnægjandi heimildir og aðgang að sérfræðiþekkingu, skýra ábyrgð á kostnaði og vanda innleiðingu svo þjónusta við íbúa og atvinnulíf verði ekki lakari en áður.
Skattar, fjárfestingar og byggðastefna
Í umsögn um breytingar á ýmsum lögum um skatta og gjöld studdi stjórn SSNE markmiðið um skýrara, einfaldara og fyrirsjáanlegra lagaumhverfi, en lagði áherslu á að einstök ákvæði verði metin út frá byggðasjónarmiðum, meðalhófi og áhrifum á smærri rekstraraðila. Breytingar sem virðast tæknilegar geta haft hlutfallslega meiri stjórnsýslu- og kostnaðaráhrif á fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga utan stærstu markaðssvæða.
Stjórnin fjallaði einnig um frumvarp til laga um fjárfestingar ríkisins í Samráðsgátt, mál sem fór þó ekki hátt í umræðunni en varðar undirbúning, mat og forgangsröðun fjárfestinga ríkisins til lengri tíma. Í umsögn sinni lagði stjórn SSNE áherslu á að mat á fjárfestingum ríkisins taki mið af samfélagslegum og byggðalegum áhrifum og ólíkum aðstæðum landshluta. Hún benti á að frumvarpið tryggði ekki sérstaka aðkomu sveitarfélaga eða landshlutasamtaka að langtímastefnumörkun og uppbyggingaráætlunum. Stjórnin kallaði því eftir formlegu samráði og því að staðbundin þekking á þörfum samfélaga, atvinnulífs og innviða nýtist við greiningu fjárfestingarþarfa og forgangsröðun verkefna.
Í umsögn um hvítbók um byggðamál dró stjórn SSNE fram mikilvægi heildstæðrar og staðbundinnar nálgunar við mótun byggðastefnu. Þar var lögð áhersla á að stefna og aðgerðir byggist á raunverulegum aðstæðum og þörfum ólíkra landshluta og styðji við öflug samfélög, atvinnuþróun og aðgengi að þjónustu um land allt.
SSNE stóð einnig að sameiginlegri umsögn með öðrum landshlutasamtökum sveitarfélaga um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Byggðastofnun. Samtökin fögnuðu því að hlutverk þeirra í atvinnu- og byggðaþróun verði betur endurspeglað í lögunum. Þau lögðu þó áherslu á að nýtt mats- og eftirfylgnihlutverk Byggðastofnunar gagnvart sóknaráætlunum styðji við samstarf ríkis og landshluta, án þess að draga úr ábyrgð ráðherra eða beinum tengslum samtakanna við ráðuneytin. Jafnframt kölluðu þau eftir skýrri verkaskiptingu og samráði um framkvæmd breytinganna svo þær leiði ekki til óþarfa stjórnsýsluálags.
Nærþjónusta og öryggi
Þá fjallaði stjórn SSNE um fyrirhugaðar skipulagsbreytingar lögreglunnar. Þar lagðist stjórnin ekki gegn meginmarkmiðum breytinganna sem eru öflugri og faglegri löggæsla, en lagði ríka áherslu á að stærri stjórnsýslueiningar megi ekki leiða til fjarlægari stjórnsýslu. Árangurinn eigi fyrst og fremst að mæla með betri þjónustu, öflugri viðbragðsgetu og auknu öryggi íbúa, óháð búsetu. Formaður stjórnar Heimir Örn Árnason greindi frá afstöðu stjórnar SSNE í viðtali á RÚV í vikunni.
Í umsögn um breytingar á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum lagði stjórnin sömuleiðis áherslu á öryggi og staðbundnar aðstæður. Þar var meðal annars kallað eftir tryggum aðgangi rekstraraðila skíðasvæða að sérfræðiþekkingu Veðurstofunnar og því að eftirlit, hættumat og varnir í dreifbýli fái sambærilega athygli og í þéttbýli. Þá var bent á að viðmið um hættumat og nýtingu svæða þurfa að vera gagnsæ og fyrirsjáanleg, enda geti ákvarðanir haft mikil áhrif á skipulag, byggingarland og atvinnuuppbyggingu.
Í umsögn um breytingar á lögum um útlendinga í Samráðsgátt var málið nálgast frá svipuðu sjónarhorni. Þar var sjónum beint að mögulegum áhrifum breytinganna á atvinnuþróun, nýsköpun og byggðafestu, sérstaklega hvað varðar möguleika fyrirtækja á landsbyggðinni til að laða að og halda í alþjóðlegt sérfræðifólk og frumkvöðla.
Þá sendi stjórn SSNE í október umsögn um stefnu og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna til ársins 2030. Stjórnin studdi markmið tillögunnar en lagði áherslu á að öll börn hafi raunhæfan aðgang að þjónustu óháð búsetu. Hún kallaði eftir því að biðtímar, þjónustuframboð og aðgengi verði metin eftir landshlutum og þjónustusvæðum og að fjármögnun taki mið af viðbótarkostnaði vegna fámennis, dreifðrar byggðar, ferðalaga og mönnunar. Jafnframt þurfi svæðisbundin farsældarráð skýrt hlutverk og fjármagn til innleiðingar og eftirfylgni.
Í september vann stjórnin jafnframt umsögn vegna hvítbókar um endurhæfingarþjónustu. Hún studdi megináherslur um einstaklingsmiðaða og samfellda endurhæfingu sem samþættan hluta heilbrigðisþjónustunnar, en lagði áherslu á að stefnumörkunin taki skýrar mið af landfræðilegri dreifingu þjónustunnar, byggðasjónarmiðum og nauðsynlegum innviðum. Jafnt aðgengi óháð búsetu verði ekki tryggt með almennri yfirlýsingu einni saman heldur þurfi skýrt hlutverk þjónustuveitenda, mælanleg viðmið og svæðisbundna mönnun. Þessar áherslur tengjast einnig ályktun Haustþings SSNE og umfjöllun stjórnarinnar um Kristnes í fjárlagaumsögninni. Þar kallaði stjórnin eftir fjármagnaðri áætlun um framtíð endurhæfingarþjónustu á Norðurlandi og skýrri ákvörðun um framtíð mannvirkja og innviða á Kristnesi í samráði við Eyjafjarðarsveit og aðra hagaðila. Tímabundinn flutningur þjónustunnar megi ekki leiða til varanlegrar skerðingar hennar eða þess að verðmætir innviðir grotni niður.
Þá sendi stjórn SSNE frá sér í dag umsögn um frumvarp til loftslagslaga. Í drögunum er tekið jákvætt í skýrari heimild sveitarfélaga til að vinna sameiginlega loftslagsstefnu sem kemur inn eftir umsögn SSNE á síðasta þingi. Jafnframt er lögð áhersla á skýra verkaskiptingu eftirlits og ráðgjafar, samræmda aðferðafræði og að hlutverk landshlutasamtaka við innleiðingu verði formgert og fjármagnað. Auknum skyldum sveitarfélaga þurfi einnig að fylgja fjármögnun og stuðningur.
Umsagnirnar sýna vel hversu víða ákvarðanir ríkisins snerta daglegt líf íbúa, rekstur sveitarfélaga og möguleika atvinnulífsins til vaxtar. Rauði þráðurinn í umsögnum stjórnar SSNE er áhersla á að ávallt sé tekið sé mið af ólíkum aðstæðum, bæði milli og innan landshluta. Með því að koma staðbundinni þekkingu og sjónarmiðum Norðurlands eystra snemma að stefnumótun og lagasetningu leitast stjórnin við að tryggja að rödd landshlutans heyrist þegar stóru málin eru mótuð, ekki aðeins eftir að ákvarðanir hafa verið teknar.
Tenglar í fréttinni