Fara í efni

Pistill framkvæmdastjóra

Mynd: Markaðsstofa Norðurlands
Mynd: Markaðsstofa Norðurlands

Pistill framkvæmdastjóra

Aprílmánuður var viðburðaríkur í starfi SSNE og endurspeglaði vel þá breidd sem einkennir starfsemi samtakanna – allt frá ungmennalýðræði og nýsköpun til stefnumótunar og þekkingaruppbyggingar í sveitarfélögum á Norðurlandi eystra.

Einn af hápunktum mánaðarins var Ungmennaþing SSNE 2026, sem haldið var á Húsavík dagana 14.–15. apríl. Þar komu saman um fimmtíu ungmenni frá tíu sveitarfélögum svæðisins og unnu markvisst að því að styrkja hlutverk ungmennaráða sveitarfélaganna og auka þannig áhrif ungs fólks á ákvarðanatöku í heimabyggð. Ungmennaþingið er mikilvægt skref í átt að virkara lýðræði og skýr áminning um að rödd ungmenna skiptir máli – ekki aðeins til framtíðar heldur hér og nú.

Á sviði nýsköpunar og atvinnuþróunar í apríl var hápunkturinn nýsköpunarkeppnin Norðansprotinn. Þar var það verkefnið Þurrlýsi sem hlaut titilinn Norðansprotinn 2026. Keppnin naut mikils áhuga víðs vegar af Norðurlandi, en alls bárust yfir 40 umsóknir sem sýnir glöggt þann kraft og frumkvæði sem býr í fólki og fyrirtækjum á svæðinu. Í síðustu viku tóku verkefnastjórar frá SSNE svo þátt í Nýsköpunarvikunni þar sem landshlutasamtökin og Byggðastofnun tóku höndum saman og kynntu sérstaklega nýsköpun á landsbyggðinni sem vakti mikla athygli. Þar tók einnig nokkur fjöldi nýsköpunarverkefna frá Norðurlandi þátt sem var afar ánægjulegt. Slík gróska er lykilþáttur í því að skapa fjölbreytt og sjálfbært atvinnulíf til framtíðar.

Í mánuðinum gaf SSNE út skýrslu um stoðir atvinnu- og mannlífs í Langanesbyggð. Skýrslan dregur fram stöðu, áskoranir og tækifæri svæðisins og er mikilvægt innlegg í áframhaldandi stefnumótun og uppbyggingu sveitarfélagsins. Í því samhengi er sérstaklega ánægjulegt að nefna að SSNE og Austurbrú hlutu C1 styrk úr stefnumótandi aðgerð Byggðaáætlunar sem gerir okkur kleift að byggja ofan á það vinnu sem þegar hefur verið unnin á Langanesinu og útvíkka verkefnið þannig að það nái nú yfir stærra svæði – frá Öxarfirði til Vopnafjarðar.

Í starfsmannamálum SSNE urðu einnig tímamót í aprílmánuði, þegar Hildur Halldórsdóttir, verkefnastjóri menningarmála, lauk störfum eftir metnaðarfullt starf síðustu ár. Ég vil þakka henni innilega fyrir hennar framlag og elju í þágu menningar og skapandi greina. Um leið óska ég henni velfarnaðar í nýju starfi sem forstöðumaður Þekkingarnets Þingeyinga, þar sem ég er sannfærð um að reynsla hennar og þekking muni nýtast vel.

Annars styttist nú hratt í sveitarstjórnarkosningar sem haldnar verða 16. maí næstkomandi. Með nýju kjörtímabili verða eins og alltaf heilmiklar breytingar hjá SSNE þar sem eftir kosningar verður skipuð ný stjórn samtakanna. Í tilefni kosninganna stóð SSNE, í samstarfi við Markaðsstofu Norðurlands og Eim, fyrir rafrænum kynningarfundi fyrir framboð til sveitarstjórna á Norðurlandi eystra. Þar var starfsemi og hlutverk samtakanna kynnt með það að markmiði að efla skilning á mikilvægi svæðisbundinnar samvinnu í byggða- og atvinnumálum. Slíkt samtal er mikilvægt til að tryggja samfellu, þekkingu og sameiginlega sýn inn í nýtt kjörtímabil.

Framundan eru spennandi tímar. Með nýju kjörtímabili, áframhaldandi verkefnum og sterkri samvinnu horfum við bjartsýn fram á veginn og höldum áfram að vinna að því sameiginlega markmiði að efla Norðurland eystra sem öflugt og eftirsóknarvert svæði til búsetu og atvinnu.

Getum við bætt síðuna?