Fara í efni

Lokum hleðslugatinu- opnað fyrir styrkumsóknir 1. maí. Átak 2026 til að hraða rafbílavæðingu með uppbyggingu hleðsluinnviða

Markmiðið er að hvergi á þjóðvegakerfi landsins verði lengra en 100 km á milli hraðhleðslustöðva. / …
Markmiðið er að hvergi á þjóðvegakerfi landsins verði lengra en 100 km á milli hraðhleðslustöðva. / Mynd: Unsplash.

Lokum hleðslugatinu- opnað fyrir styrkumsóknir 1. maí. Átak 2026 til að hraða rafbílavæðingu með uppbyggingu hleðsluinnviða

Ríkisstjórnin hyggst ráðast í sérstakt átaksverkefni árið 2026 til að efla hleðsluinnviði rafbíla um land allt. Aðgerðirnar eru kynntar í ljósi hækkandi heimsmarkaðsverðs olíu og óstöðugleika á eldsneytismörkuðum, með það að markmiði að flýta orkuskiptum í samgöngum og draga úr berskjöldun heimila og fyrirtækja gagnvart verðsveiflum.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið ber ábyrgð á framkvæmd verkefnisins í samstarfi við Umhverfis- og orkustofnun og Loftslags- og orkusjóð. Gert er ráð fyrir að heildarumfang átaksins nemi 500 milljónum króna og að aðgerðir komi til framkvæmda á árinu 2026, en undirbúningur er þegar hafinn.

Fjórar aðgerðir til að bæta hleðsluaðgengi

  • Hleðsla í fjöleignarhúsum: Stuðningur við uppbyggingu hleðslustöðva til að jafna aðgengi, sérstaklega í húsum byggðum áður en kröfur um hleðsluinnviði við nýbyggingar tóku gildi.
  • Þéttara hraðhleðslunet á þjóðvegum: Markvisst fyllt í eyður á hringveginum og þjóðvegakerfinu með það að markmiði að í lok árs 2026 verði hvergi meira en 100 km á milli hraðhleðslustöðva og að hraðhleðsla sé í hverjum þéttbýlisstað.
  • Hleðsla við gististaði: Stuðningur við hleðsluaðstöðu sem getur hraðað rafvæðingu bílaleiguflotans og auðveldað ferðamönnum að velja rafbíla.
  • Einfaldari greiðslur: Vinna hafin að samræmdara greiðslufyrirkomulagi svo auðveldara verði að greiða með greiðslukorti í stað ólíkra snjallforrita.

Stjórnvöld vísa til þess að eftirspurn eftir rafbílum hafi aukist í kjölfar hækkandi olíuverðs og truflana á alþjóðlegum orkumörkuðum. Á Íslandi sé raforkuverð jafnframt meðal þess lægsta sem gerist, sem geti gert rekstrarsparnað af rafbílavæðingu meiri en víða annars staðar, samhliða því að framleiðslukostnaður rafbíla hafi lækkað og hleðslustöðvum fjölgað.

Sem hluti af aðgerðum stjórnvalda er jafnframt hafin vinna við næstu styrkjaúthlutun til uppbyggingar hraðhleðslustöðva. Heildarfjárhæð til úthlutunar er allt að 150 m.kr., styrkur getur numið allt að 50% af styrkhæfum kostnaði (án VSK) og hámark 20 m.kr. á verkefni. Opnað verður fyrir umsóknir 1. maí 2026 og lokafrestur er 1. júní kl. 15:00. Nánari upplýsingar um styrkinn má nálgast hér.

Átakið er liður í forgangsverkefnum stjórnvalda í loftslagsmálum og orkuskiptum í samgöngum. Nánari útfærsla á framkvæmd átaksins er í vinnslu.

Efni í frétt fengin af: Hraðari rafbílavæðing á tímum hækkandi olíuverðs og Lokum hleðslugatinu - opnað fyrir styrkumsóknir 1. maí

Getum við bætt síðuna?