Ný skýrsla SSNE um stoðir atvinnu- og mannlífs í Langanesbyggð
Ný skýrsla SSNE um stoðir atvinnu- og mannlífs í Langanesbyggð
SSNE hefur gefið út nýja skýrslu sem ber heitið Stoðir atvinnu & mannlífs í Langanesbyggð. Í skýrslunni er reynt að gefa nokkra mynd atvinnulífi, innviðum og byggðaþróun á svæðinu og draga fram þau tækifæri sem eru til staðar til að styrkja byggðafestu og skapa sjálfbæra framtíð.
Skýrslan byggir á staðbundinni greiningu, opinberum gögnum og stefnuramma stjórnvalda. Hún er unnin í nánu samstarfi við Langanesbyggð og er ætlað að nýtast sem sameiginlegur þekkingargrunnur fyrir sveitarfélagið, ríki, atvinnulíf og aðra hagaðila sem koma að uppbyggingu svæðisins.
Greindar eru fimm lykilstoðir atvinnuuppbyggingar í Langanesbyggð: orkuiðnaður, uppbygging við Finnafjörð, sjávarútvegur, landbúnaður og ferðaþjónusta. Þá er sérstök áhersla lögð á mikilvægi innviða – þ.e. á raforku, fjarskipti, hafnir, flugsamgöngur, húshitun og húsnæðismál.
Meginboðskapur skýrslunnar er skýr: framtíð Langanesbyggðar ræðst af samspili ólíkra atvinnustoða, markvissri innviðauppbyggingu og samstilltu átaki ríkis, sveitarfélags og einkaaðila. Með skýrri forgangsröðun, samhæfðri framkvæmd og langtímahugsun eru raunhæf tækifæri til að skapa fjölbreyttara atvinnulíf, fjölga störfum og bæta lífsgæði íbúa.
Skýrslan er hluti af áframhaldandi vinnu SSNE að eflingu byggðaþróunar og atvinnulífs á Norðausturlandi og leggur grunn að upplýstri umræðu og markvissum aðgerðum til framtíðar.