Fara í efni

Norðlensk nýsköpun á Tonik í Færeyjum

Norðlensk nýsköpun á Tonik í Færeyjum

Fulltrúar nýsköpunarumhverfisins á Norðurlandi eystra sóttu nýverið nýsköpunarráðstefnuna Tonik í Færeyjum, eina helstu nýsköpunar- og frumkvöðlahátíð Norðurlanda.

Með í för voru fimm frumkvöðlar frá Norðurlandi eystra: Nanna Lín, Grænafl, Unnur  Verkbókhald, Quality Console og Sea Thru. Öll tóku þau þátt í pitch-keppni Tonik, þar sem þau kynntu verkefni sín fyrir alþjóðlegum gestum, fjárfestum og öðrum lykilaðilum í norrænu nýsköpunarumhverfi. Frammistaðan var mjög góð og stóðu allir  þátttakendur sig með prýði við kynningu á verkefnum sínum og lausnum. Af þessum verkefnum hlutu Nanna Lín og Grænafl styrk frá SSNE til þátttöku í keppninni. Styrkirnir eru hluti af áframhaldandi stuðningi SSNE við nýsköpun og frumkvöðlastarf á Norðurlandi eystra og miða að því að skapa frumkvöðlum tækifæri til að sækja sér reynslu, tengsl og sýnileika á alþjóðlegum vettvangi.

Á ráðstefnunni héldu Drift EA, SSNE og Hraðið sameiginlegan viðburð þar sem sérstök áhersla var lögð á að kynna nýsköpunarsenuna á Norðurlandi eystra. Þar fluttu frumkvöðlarnir okkar stutt pitch, að kynningum loknum fór fram öflug tengslamyndun og var viðburðurinn vel sóttur, bæði af færeyskum og alþjóðlegum þátttakendum, sem sýndu þessu mikinn áhuga.

Í tengslum við ferðina voru einnig farnar fyrirtækjaheimsóknir til  fyrirtækja í færeysku atvinnulífi. Þar má nefna heimsókn til sjávarútvegsfyrirtækisins Framherja í Fuglafirði, þar sem þátttakendur fengu góða innsýn í starfsemi fyrirtækisins, nýtingu tækni og hvernig nýsköpun og skilvirkni eru nýttar í rekstri tengdum sjávarútvegi.

Einnig var heimsótt fyrirtækið Bergfrost, sem rekur eitt stærsta og tæknilega fullkomnasta frystigeymslukerfi á Norðurlöndum. Þar fengu þátttakendur að kynna sér 27 þúsund fermetra frystigöng, sem nýtt eru í matvælaiðnaði og dreifingu.

Ferðin var afar lærdómsrík og skapaði dýrmæt tækifæri til þekkingarmiðlunar, tengslamyndunar og samstarfs milli Norðurlands eystra og Færeyja. Við þökkum færeyskum samstarfsaðilum kærlega fyrir hlýjar móttökur og hlökkum til að efla tengslin enn frekar á sviði nýsköpunar og frumkvöðlastarfs á komandi misserum.

Getum við bætt síðuna?