Fiðringur á Norðurlandi fer fram í fimmta sinn í Hofi
Fiðringur á Norðurlandi fer fram í fimmta sinn í Hofi
Viðburðurinn Fiðringur fer fram 6. maí kl. 20:00 í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Fiðringur er skapandi viðburður þar sem nemendur í 8.–10. bekk grunnskóla fá tækifæri til að tjá sig í gegnum ýmiss konar list- og sviðsframkomu. Nemendur vinna sjálfir að útfærslu atriða í samstarfi við leiðbeinendur. Verkefnið hefur hlotið stuðning úr Sóknaráætlun Norðurlands eystra 2025–2029 og fellur vel að markmiðum hennar um að efla menningarlíf, þátttöku ungs fólks og lifandi samfélög á Norðurlandi eystra.
Í ár taka 10 skólar þátt sem teygja sig frá Hvammstanga til Húsavíkur. Nemendur sem velja Fiðring vinna alla önnina að því að skapa og æfa atriðið sitt með leiðbeinenda og sjá sjálf um alla útfærslu; búninga, förðun, leikmynd, tækni, dans og tónlist.