Norðurland á Nýsköpunarvikunni
Norðurland á Nýsköpunarvikunni
Nú er yfirstaðin Nýsköpunarvikan eða Iceland Innovation Week sem haldin er árlega í Reykjavík. Um er að ræða stærstu nýsköpunarveislu landsins sem haldin er víðsvegar um borgina. Fjölbreyttir viðburðir sem tóku á öllu nýsköpunarferðlaginu frá hugmynd til fjármögnunar voru vel sóttir.
Landshlutasamtökin ásamt Byggðastofnun stóðu fyrir vel heppnuðum hliðarviðburði á nýsköpunarvikunni í Grósku á þriðjudaginn þar sem kynntur var viðskiptahraðlinn Startup Landið en þar er lögð áhersla á nýsköpun, frumkvöðlastarf og tækifærin sem eru um allt land. Markmiðið með viðburðinum var að kynna það stuðningsumhverfi sem stendur atvinnu- og nýsköpunarverkefnum til boða á landsbyggðinni, skapa tengsl við frumkvöðla, fjárfesta og aðra hagaðila, og taka þátt í samtali um hvernig efla megi nýsköpun utan höfuðborgarsvæðisins.
Með þátttöku í Iceland Innovation Week styrkir SSNE enn frekar tengsl sín við nýsköpunarumhverfið og leggur sitt af mörkum til að auka sýnileika þeirrar fjölbreyttu starfsemi og þeirra tækifæra sem eru til staðar á Norðurlandi eystra.