Fara í efni

Púlsinn - Fasteignamarkaðurinn á Norðurlandi eystra

Púlsinn - Fasteignamarkaðurinn á Norðurlandi eystra

Fasteignamarkaðurinn á Norðurlandi eystra var áfram vel virkur árið 2025, en sölutölur benda til samdráttar á Siglufirði, Húsavík og í Ólafsfirði – og að einhverju leyti í Dalvíkurbyggð. Á sama tíma heldur Akureyri auka umsvif sín og er fasteignaverð hæst í póstnúmeri 600.

Nýr Púls SSNE fjallar í þetta skipti um fasteignamarkaðinn á Norðurlandi eystra og stöðu hans. Í honum er varpað ljósi á þróun sölu og og verðs íbúa í landshlutanum og hvernig hún endurspeglar ólíkar aðstæður í byggðarlögum Norðurlands eystra. Púlsinn dregur fram áhugaverð mynstur í virkni fasteignamarkaðarins, bæði þar sem markaðurinn heldur áfram að sýna styrk og þar sem vísbendingar eru um að hægt hafi á. 

 

Greiningin byggir á gögnum úr kaupskrá HMS sem tekin voru út 28. apríl 2026 og ber að túlka niðurstöður með varúð, m.a. þar sem einstaka kaupsamninga getur vantað í gagnasafnið og ekki var hægt að sía út sölur sem voru hluti af bújörðum.

Púlsinn - Norðurland eystra í tölum er hluti af greiningarverkefni SSNE sem varpar ljósi á stöðu og þróun mála í landshlutanum. 

Hér má nálgast Púlsinn -  Fasteignamarkaður á Norðurlandi eystra

Getum við bætt síðuna?