Fara í efni

Fréttir

Jan Feb Mar Apr Maí Jún Júl Ágú Sep Okt Nóv Des

Nýjar niðurstöður úr fyrirtækjakönnun landshlutanna

SSNE hefur gefið út fjórða tölublað Púlsins þar sem dregnar eru saman niðurstöður úr fyrirtækjakönnun landshlutanna.

Opið fyrir umsóknir í Startup Landið

Opið er fyrir umsóknir í nýsköpunarhraðalinn Startup Landið 2026. Hraðallinn er sérsniðinn að frumkvöðlum á landsbyggðinni og er kjörinn vettvangur fyrir einstaklinga og teymi sem ganga með metnaðarfullar viðskiptahugmyndir og vilja láta til sín taka.

Aukið fjármagn til menningarviðburða á Norðurlandi eystra

Unnið er að nýju áhersluverkefni, sem hefur það að markmiði að efla menningar- og listviðburði á Norðurlandi eystra með auknu fjármagni og bættri miðlun.

Mikil­vægur á­fangi fyrir Norður­land og landið allt

Fimmtudaginn 18. júní 2026, verður tekin fyrsta skóflustungan að nýrri legudeild Sjúkrahússins á Akureyri. Það er stór stund fyrir sjúkrahúsið, starfsfólkið og samfélagið allt. Um leið er þetta áfangi sem minnir okkur á hversu mikilvægt það er að byggja upp sterka heilbrigðisþjónustu víðar en á höfuðborgarsvæðinu.

Menning í Fjallabyggð

SSNE hélt Menningarsúpu á Siglufirði þar sem fjallað var um stöðu menningar og lista í Fjallabyggð og á Norðurlandi eystra. Á fundinum var farið yfir Uppbyggingarsjóð, nýlegar breytingar á úthlutunarreglum og umsjón sjóðsins. Jafnframt var kynnt nýtt áhersluverkefni sem leggur aukna áherslu á fjármögnun menningar- og listviðburða í næstu úthlutun.

Fulltrúar SSNE sóttu ráðstefnuna Skapandi Austurland

Fulltrúar SSNE sóttu nýverið ráðstefnuna Skapandi Austurland sem haldin var á Eskifirði. Ráðstefnan er samstarfsverkefni Austurbrúar, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins og Menningarstofu Fjarðabyggðar.
Starfsmenn skoða auka afurð sem verður til þegar steinull er búin til.

Sameiginlegur vinnusdagur SSNE og SSNV á Norðurlandi vestra

Starfsfólk SSNE og SSNV sem sinnir umhverfis- og loftslagsmálum hélt sameiginlegan vinnudag 2. júní. Í tilefni dagsins voru heimsótt fyrirtæki og sveitarfélög á Norðurlandi vestra til að kynna sér verkefni tengd sjálfbærni, umhverfismálum og orkuskiptum.

Umsóknarfrestur Uppbyggingarsjóðs ákveðinn

Tekin hefur verið ákvörðun um umsóknarfrest í Uppbyggingarsjóðs Norðurlands eystra, en opnað verður fyrir umsóknir þann 16. september og er sjóðurinn opinn fyrir umsóknir til 21. október kl. 14.00.

Menningarsúpa á Siglufirði

SSNE býður til opins fundar á Siglufirði mánudaginn 15. júní kl. 12:00 á Síldarkaffi undir yfirskriftinni Menningarsúpa.

Viðburðadagatal Norðurlands

Á Norðurlandi er alltaf eitthvað spennandi í gangi og nú er auðveldara en nokkru sinni fyrr að fylgjast með öllu því sem er í boði. Á vef Markaðsstofu Norðurlands má finna viðburðadagatal þar sem safnað er saman fjölbreyttum viðburðum um allt svæðið.
Getum við bætt síðuna?