Fara í efni

Nýjar niðurstöður úr fyrirtækjakönnun landshlutanna

Nýjar niðurstöður úr fyrirtækjakönnun landshlutanna

SSNE hefur gefið út fjórða tölublað Púlsins þar sem dregnar eru saman niðurstöður úr fyrirtækjakönnun landshlutanna. Í Púlsinum er varpað ljósi á stöðu og væntingar fyrirtækja á Norðurlandi eystra, meðal annars hvað varðar rekstur, ráðningar og framtíðarhorfur.

Niðurstöðurnar gefa mikilvæga innsýn í rekstrarumhverfi fyrirtækja og hvernig þau meta stöðuna á næstu misserum. Líkt og í fyrri könnunum kemur fram að fyrirtæki sjá bæði tækifæri og áskoranir í starfsemi sinni, þar sem þættir á borð við aðgengi að vinnuafli, þróun kostnaðar og almenn efnahagsstaða vega þungt í mati þeirra.

Púlsinn sýnir jafnframt að margir hyggjast halda áfram að þróa rekstur sinn og kanna möguleika til vaxtar, þó að óvissa í efnahagsumhverfinu hafi áhrif á ákvarðanir hjá sumum. Þá endurspeglast í niðurstöðunum mikilvægi þess að efla færni, menntun og aðstæður atvinnulífs á svæðinu til að styðja við áframhaldandi uppbyggingu.

Púlsinn er einn liður í því að fylgjast reglulega með stöðu atvinnulífs á svæðinu og skapa traustan grunn fyrir stefnumótun og ákvarðanatöku á vettvangi byggðaþróunar.

Hér má nálgast Púlsinn - Fyrirtækjakönnun landshlutanna

Getum við bætt síðuna?