Fara í efni

Sameiginlegur vinnusdagur SSNE og SSNV á Norðurlandi vestra

Starfsmenn skoða auka afurð sem verður til þegar steinull er búin til.
Starfsmenn skoða auka afurð sem verður til þegar steinull er búin til.

Sameiginlegur vinnusdagur SSNE og SSNV á Norðurlandi vestra

Starfsfólk SSNE og SSNV sem sinnir umhverfis- og loftslagsmálum hélt sameiginlegan vinnudag 2. júní. Í tilefni dagsins voru heimsótt fyrirtæki og sveitarfélög á Norðurlandi vestra til að kynna sér verkefni tengd sjálfbærni, umhverfismálum og orkuskiptum.

Dagurinn hófst hjá Kaupfélagi Skagfirðinga þar sem Ólöf Lovísa tók á móti okkur og kynnti stefnu og markmið fyrirtækisins í umhverfis- og sjálfbærnimálum, auk þeirra verkefna sem unnið er að.

Þaðan var haldið í Steinull sem hefur hlotið viðurkenningu sem framúrskarandi fyrirtæki í 15 ár í röð. Þar tóku á móti okkur Eyþór Fannar Sveinsson og Rafn Ingi Rafnsson. Þeir fræddu okkur um framleiðsluna og hversu langt þeir eru komnir í endurnýtingu/-vinnslu sem og í að raforkuvæða fyrirtækið. Einnig vakti athygli okkar árangur sem hefur náðst í moltugerð og metnaður sem starfsmenn Steinull hafa sýnt verkefninu..

Næst var komið við á Skagaströnd þar sem kynntar voru umbætur á hafnarsvæðinu og verkefni tengd orkuskiptum. Vilhelm Björn Harðarson hitti okkur á höfninni og leiddi um svæðið. Það styttist óðum í að höfnin verði tilbúin til að taka á móti skipum sem nýta raforku sem orkugjafa og geta þá lagst þar í höfn og fengið hleðslu.

Í Stekkjavík tók Elvar Bjarki á móti okkur og fræddi um starfsemina þar, en urðun sorps frá stórum hluta Norðurlands fer fram á svæðinu. Hann fræddi okkur um þau sóknarfæri sem felast í aukinni flokkun sorps, sem og um hvernig hægt væri að nýta betur metangasið sem er auka „afurð“ á urðunarstaðnum.

Á Blönduósi tók Bergþór Gunnarsson í Þjónustumiðstöð Húnabyggðar á móti okkur og sýndi moltugerðarvél og plastpökkunarvél sem sveitarfélagið nýtir til að draga úr kostnaði og skapa aukin verðmæti fyrir sveitarfélagið úr úrgangi. Eins manns rusl er annars gull.

Að lokum heimsótti hópurinn Textílmiðstöð Íslands þar sem Elsa Arnardóttir tók á móti honum. Hún sýndi TextílLab-ið og ræddi við okkur um tækifæri og áskoranir sem felast í endurvinnslu textíls. Einnig var rætt um sóknarmöguleika sem Norðurland vestra/Húnabyggð til að styrkja stöðu sína á þessu sviði meðal annars, í ljósi þess að bæði ullarþvottastöðin og Textílmiðstöð Íslands eru staðsett á svæðinu.

Heimsóknirnar veittu góða innsýn í fjölbreytt verkefni á sviði sjálfbærni, úrgangsmála og orkuskipta á Norðurlandi vestra. Dagurinn undirstrikaði mikilvægi samstarfs, miðlunar þekkingar og nýsköpunar í umhverfis- og loftlagsmálum.

Getum við bætt síðuna?