Viðburðadagatal Norðurlands
Viðburðadagatal Norðurlands
Á Norðurlandi er alltaf eitthvað spennandi í gangi og nú er auðveldara en nokkru sinni fyrr að fylgjast með öllu því sem er í boði. Á vef Markaðsstofu Norðurlands má finna viðburðadagatal þar sem safnað er saman fjölbreyttum viðburðum um allt svæðið.
Á dagatalinu, sem aðgengilegt er á vef Markaðsstofu Norðurlands, má finna viðburði af ýmsum toga – allt frá menningarviðburðum, tónleikum og bæjarhátíðum til íþróttaviðburða, útivistartengdra viðburða og fjölskylduvænna uppákomna. Slíkt dagatal er mikilvægt tæki til að miðla upplýsingum bæði til íbúa og gesta, og stuðlar að aukinni sýnileika viðburða á Norðurlandi.
SSNE hvetur einnig alla þá sem standa fyrir viðburðum á Norðurlandi til að skrá sína viðburði á dagatalið. Með því eykst aðgengi að upplýsingum og líkur á aukinni þátttöku. Skráning fer fram með einföldum hætti á sama vef, þar sem hægt er að senda inn upplýsingar um viðburði til birtingar ásamt lýsingu, dagsetningum og öðrum gagnlegum upplýsingum.
Öflugt og vel uppfært viðburðadagatal er mikilvægur þáttur í að efla líf á svæðinu, styðja við ferðaþjónustu og auka sýnileika þeirra fjölmörgu og fjölbreyttu viðburða sem eiga sér stað á Norðurlandi allt árið um kring.