Fulltrúar SSNE sóttu ráðstefnuna Skapandi Austurland
Fulltrúar SSNE sóttu ráðstefnuna Skapandi Austurland
Fulltrúar SSNE sóttu nýverið ráðstefnuna Skapandi Austurland sem haldin var á Eskifirði. Ráðstefnan er samstarfsverkefni Austurbrúar, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins og Menningarstofu Fjarðabyggðar.
Á ráðstefnunni komu saman fulltrúar menningarlífs, stjórnvalda, rannsókna og skapandi greina til að ræða stöðu, tækifæri og framtíð lista og menningar í landsbyggðum. Á dagskrá voru erindi, pallborðsumræður og vinnustofur þar sem m.a. var fjallað um nýja menningarstefnu Austurlands, nýsköpun í skapandi greinum og uppbyggingu stoðkerfa utan höfuðborgarsvæðisins.
Þátttaka á ráðstefnunni er liður í því að efla tengsl og miðla þekkingu milli landshluta, með það að markmiði að styrkja skapandi greinar og menningarstarf á landsbyggðinni.