Menningarsúpa á Siglufirði
Menningarsúpa á Siglufirði
SSNE býður til opins fundar á Siglufirði mánudaginn 15. júní kl. 12:00 á Síldarkaffi undir yfirskriftinni Menningarsúpa.
Á fundinum verður ætlum við að ræða um menningarverkefni í sveitarfélaginu ásamt því að vera með stutta kynningu á Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra og fara yfir þau tækifæri sem standa til boða fyrir verkefni á svæðinu.
Fundurinn er öllum opinn og eru öll áhugasöm hvött til að mæta – hvort sem er til að kynna sér styrkjamöguleika eða taka þátt í samtali um menningu á svæðinu.
Hægt verður að kaupa súpu og brauð á staðnum fyrir 2.400 kr.